Jólatónleikar Marína Ósk, sem hér er, syngur með Stínu Ágústsdóttur.
Jólatónleikar Marína Ósk, sem hér er, syngur með Stínu Ágústsdóttur. — Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Söngkonurnar Marína Ósk og Stína Ágústsdóttir koma fram ásamt hljómsveit á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans í Flóa í Hörpu í kvöld, miðvikudagskvöld, klukkan 20. Söngkonurnar hófu samstarf sitt árið 2018, þá báðar búsettar í Stokkhólmi.

Söngkonurnar Marína Ósk og Stína Ágústsdóttir koma fram ásamt hljómsveit á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans í Flóa í Hörpu í kvöld, miðvikudagskvöld, klukkan 20.

Söngkonurnar hófu samstarf sitt árið 2018, þá báðar búsettar í Stokkhólmi. Í tilkynningu segir að lítil hugmynd að jólatónleikum á íslensku hafi undið upp á sig „og ári seinna fæddist heil hljómplata sem fékk nafnið Hjörtun okkar jóla . Platan kom út í desember 2019 og hlaut lof gagnrýnenda“. Tónlistin er samsett úr norrænum jólalögum, lítt sem vel þekktum, og hafa þær Stína og Marína samið íslenska texta við þau flest. Tónlistin er sögð hlustendavæn, hugljúf og hlý og einstaklega passandi fyrir desemberrökkrið. Auk laga af fyrrnefndri plötu munu þær stöllur flytja vel valin jólalög í djössuðum útsetningum, en gítarleikarinn Mikael Máni Ásmundsson hefur yfirumsjón með þeirri deild og er einnig rafgítarleikari verkefnisins. Andri Ólafsson bassaleikari og bakraddasöngvari veitir þríeykinu lið.