Vetrarmýri Fyrirhugað byggingarsvæði og fjölnota íþróttahús, sem senn verður tekið í notkun. Fjærst eru áfangarnir fimm sem boðnir hafa verið út.
Vetrarmýri Fyrirhugað byggingarsvæði og fjölnota íþróttahús, sem senn verður tekið í notkun. Fjærst eru áfangarnir fimm sem boðnir hafa verið út.
Framkvæmdafélagið Arnarhvoll átti hæsta tilboð í allar lóðir á nýju byggingasvæði í Vetrarmýri í Garðabæ og bauð tæplega 3,3 milljarða í lóðirnar.

Framkvæmdafélagið Arnarhvoll átti hæsta tilboð í allar lóðir á nýju byggingasvæði í Vetrarmýri í Garðabæ og bauð tæplega 3,3 milljarða í lóðirnar. Í þessum fyrsta áfanga byggðar í Vetrarmýri var boðinn út byggingarréttur á um 26 þúsund fermetum af fjölbýli og 26 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði á fimm aðskildum reitum.

Tilboð frá 13 fyrirtækjum

Á fundi bæjarráðs Garðabæjar í gær gerðu fulltrúar fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka grein fyrir tilboðum sem bárust. Alls gerðu 13 fyrirtæki tilboð í allar lóðirnar eða einstaka áfanga. Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka að hefja viðræður og leita samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvol sem er hæstbjóðandi samtals í alla reiti.

Fram kom í Morgunblaðinu fyrir mánuði að reiknað er með að framkvæmdir í þessum áfanga hefjist á næsta ári og lóðir verði afhentar næsta haust. Vetrarmýri er eitt af þremur fyrirhuguðum uppbyggingarsvæðum á Vífilsstaðalandi.

Framkvæmdafélagið Arnarhvoll ehf. hóf starfsemi um mitt ár 2017, að því er fram kemur á heimasíðu félagsins, og byggir m.a. Grósku í Vatnsmýrinni. Framkvæmdastjóri félagsins er Karl Þráinsson og fjármálastjóri Hrefna Björk Ólafsdóttir. Félagið er í eigu Andra Sveinssonar, Árna Geirs Magnússonar, Birgis Más Ragnarssonar, Björgólfs Thors Björgólfssonar og Karls Þráinssonar. aij@mbl.is