Richie Faulkner er aðeins 41 árs.
Richie Faulkner er aðeins 41 árs.
Seigla Richie Faulkner, gítarleikari Judas Priest, er allur að koma til en eins og dyggir lesendur Lesbókar vita fékk hann hjartaáfall á tónleikum í haust og var drifinn með hraði í opna hjartaaðgerð.
Seigla Richie Faulkner, gítarleikari Judas Priest, er allur að koma til en eins og dyggir lesendur Lesbókar vita fékk hann hjartaáfall á tónleikum í haust og var drifinn með hraði í opna hjartaaðgerð. Kappinn birtist óvænt á samfélagsmiðlinum Instagram um liðna helgi með gítarinn og hélt sér við efnið í hér um bil tvær klukkustundir. Að því loknu sagðist hann allur vera að eflast og styrkjast með hjálp frá fjölskyldu sinni og aðdáendum og grípa í gítarinn daglega. „Ég verð kominn á svið áður en þið vitið af! Skurðlæknarnir mínir eru mjög ánægðir með framfarirnar og eiga allir sem einn frátekna miða á næstu Priest-tónleika. Ha ha.“