Digraneskirkja í Kópavogi
Digraneskirkja í Kópavogi — Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
AKUREYRARKIRKJA | Aðventuhátíð fjölskyldunnar – opin kirkja kl. 11-12.30. Yngri barnakór Akureyrarkirkju syngur og strengjaleikarar úr Tónlistarskólanum á Akureyri leika jólalög. Umsjón sr. Stefanía, Sonja og Sigrún Magna.
AKUREYRARKIRKJA | Aðventuhátíð fjölskyldunnar – opin kirkja kl. 11-12.30. Yngri barnakór Akureyrarkirkju syngur og strengjaleikarar úr Tónlistarskólanum á Akureyri leika jólalög. Umsjón sr. Stefanía, Sonja og Sigrún Magna. Fólki er velkomið að koma og fara að vild.

ÁRBÆJARKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 með jólaívafi í umsjá Ingunnar Jónsdóttur djákna og sr. Petrínu Mjallar Jóhannesdóttur. Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á flygilinn.

ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 13. Jóhanna María Eyjólfsdóttir djákni leiðir samverustund sunnudagaskólans. Séra Aldís Rut Gísladóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur, organisti er Bjartur Logi Guðnason. Athugið að grímuskylda er í kirkjunni.

Aðventuhátíð safnaðarins fellur niður þetta árið vegna fjöldatakmarkana.

ÁSKIRKJA í Fellum | Jólasamvera undir Ásnum mánudag 13. desember kl. 20. Gömlu góðu aðventu- og jólasálmarnir sungnir. Kór Áskirkju leiðir söng undir stjórn Drífu Sigurðardóttur organista. Sr. Brynhildur Óla Elínardóttir og Þórhalla Sigmundsdóttir flytja samtalshugvekju: Jól í sveit og jól í bæ. Öllum gildandi sóttvarnareglum framfylgt.

ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 17. Davíð Sigurgeirsson stjórnar tónlistinni og Melkorka Rós leiðir söng. Prestur er Kjartan Jónsson.

BESSASTAÐAKIRKJA | Aðventuhátíð barnanna kl. 11 í Bessastaðakirkju. Jólasálmar, jólasöngvar og börn á Álftanesi setja upp helgileik.

Nauðsynlegt að láta skrá sig á bessastadakirkja.skramur.is vegna fjöldatakmarkana.

BREIÐHOLTSKIRKJA | Aðventuguðsþjónusta kl. 11. Prestur er Magnús Björn Björnsson. Örn Magnússon organisti leikur undir á flygil og orgel. Súkkulaði og smákökur eftir guðsþjónustuna. Sunnudagaskóli á sama tíma. Steinunn Þorbergsdóttir djákni og Steinunn Leifsdóttir æskulýðsfulltrúi leiða stundina. Alþjóðlegi söfnuðurinn. Aðventuguðsþjónusta kl. 14. Prestar eru Toshiki Toma og Ása Laufey Sæmundsdóttir. Örn Magnússon leiðir safnaðarsöng. Barnagæsla. Kirkjukaffi eftir stundina.

BÚSTAÐAKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Jónas Þórir organisti leikur á flygilinn, Sóley Adda, Kata og sr. María þjóna. Athugið að það er aðeins ein messa aðventusunnudagana.

DIGRANESKIRKJA | Fjölskyldustund kl. 11. Sr. Karen Lind Ólafsdóttir og sunnudagaskólaleiðtogar sjá um stundina.

Helgistund í Hjallakirkju kl. 17. Sr. Gunnar Sigurjónsson. Tónlist: Matthías V. Baldursson.

DÓMKIRKJAN | Guðþjónusta kl. 11, sr. Sveinn Valgeirsson, Dómkórinn og Kári Þormar dómorganisti. Norsk messa klukkan 14, sr. Þorvaldur Víðisson. Gætum vel að sóttvörnum.

EGILSSTAÐAKIRKJA | Jólalegur sunnudagaskóli kl. 10.30. Síðasta samvera fyrir jól. Heitt súkkulaði og piparkökur eftir stundina. Aðventuhátíð Egilsstaðakirkju verður aðeins á vefnum egilsstadakirkja.is þetta árið.

Barnakórinn og kirkjukórinn syngja. Jódís Skúladóttir alþingismaður flytur hugvekju. Þorgeir Arason sóknarprestur.

FELLA- og Hólakirkja | Aðventusamvera fjölskyldunnar kl. 11, sungin verða ýmis jólalög, jólasaga sögð og sveinkar koma í heimsókn. Sr. Pétur Ragnhildarson leiðir stundina. Barnakór Hólabrekkuskóla syngur undir stjórn Diljár Sigursveinsdóttur. Nemendur frá Tónskóla Sigursveins leika á hljóðfæri.

GARÐAKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta á vegum Rótarýklúbbsins Görðum í Garðakirkju kl. 12.30. Sr. Sveinbjörn R. Einarsson leiðir stundina.

GRAFARVOGSKIRKJA |

Guðsþjónustan kl. 11. Sr. Magnús Erlingsson þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Nemendur úr Tónlistarskólanum í Grafarvogi koma fram. Organisti er Hákon Leifsson. Kirkjunni verður skipt í hólf samkvæmt sóttvarnareglum. Sunnudagaskóli er á neðri hæð kirkjunnar á sama tíma. Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir og Valbjörn Snær Lilliendahl. Undirleikari er Stefán Birkisson. Selmessu í Kirkjuselinu kl. 13 er aflýst.

GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Nemendur úr Suzukitónlistarskólanum í Reykjavík spila. Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar. Organisti er Ásta Haraldsdóttir, Kirkjukór Grensáskirkju leiðir messusöng. Aðventukvöld og afmælishátið kl. 17 í tilefni 25 ára vígsluafmælis Grensáskirkju. Hátíðarræðu flytur Brynhildur Guðjónsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins. Á eftir býður sóknarnefndin upp á kaffi og konfekt. Vegna samkomutakmarkana er nauðsynlegt að framvísa neikvæðu hraðprófi.

GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Sunnudagaskólinn kl. 11. Jólasveinn kemur í heimsókn og piparkökur skreyttar.

HAFNARFJARÐARKIRKJA | Jólastund barnanna kl. 11. Barna- og unglingakórar Hafnarfjarðarkirkju syngja og sýna helgileik. Kirkjunni verður skipt í tvö hólf og grímuskylda er fyrir fullorðna. Jólavaka kl. 20 – myndband á heimasíðu og facebooksíðu Hafnarfjarðarkirkju.

Sr. Jónína Ólafsdóttir flytur hugvekju, Barbörukórinn og Barna- og unglingakórar Hafnarfjarðarkirkju syngja og Guðmundur Sigurðsson leikur á orgel.

Nánar: www.hafnarfjardarkirkja.is

HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Sr. Eiríkur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Vox Feminae syngur og leiðir messusönginn undir stjórn Hrafnhildar Árnadóttur Hafstað. Organisti er Steinar Logi Helgason. Umsjón með barnastarfinu hafa Kristný Rós Gústafsdóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir. Barnastarf er í kórkjallara, gengið er inn austanmegin. Ensk guðsþjónusta kl. 14 með lestrum og jólasöngvum.

HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Börn kveikja á aðventukransinum. Kordía, kór Háteigskirkju, syngur undir stjórn organistans, Guðnýjar Einarsdóttur.

HJALLAKIRKJA Kópavogi | Helgistund kl. 17 í umsjón sr. Gunnars Sigurjónssonar. Matthías V. Baldursson sér um tónlistina. Sama dag verður hið hefðbundna jólaball sunnudagaskólans haldið í Digraneskirkju kl. 11.

ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma kl. 13. Fjölbreytt tónlistaratriði, öflugt barnastarf og dagskrá við allra hæfi. Ólafur H. Knútsson flytur stutta hugvekju. Kaffi að samverustund lokinni.

KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 11. Arnór Vilbergsson og félagar í kór Keflavíkurkirkju leiða sálmasöng. Séra Fritz Már Jörgensson þjónar fyrir altari.

KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Jólastund, sr. Sjöfn Jóhannesdóttir og Laufey Brá Jónsdóttir leiða stundina.

KVENNAKIRKJAN | Aðventumessa verður í Grensáskirkju kl. 20. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar og Aðalheiður Þorsteinsdóttir leiðir söng jólalaganna og leikur á píanó. Á eftir verður messukaffi í safnaðarsalnum.

LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Aldís Rut Gísladóttir prestur þjónar og Krúttakórinn syngur undir stjórn Bjargar Þórsdóttur og Móeiðar Kristjánsdóttur.

LÁGAFELLSKIRKJA | Aðventustund barnastarfsins kl. 13 í Lágafellskirkju. Jólasöngur, brúðuleikrit, aðventukransinn og jólasaga. Grænar og appelsínugular gjafir í lok samveru. Umsjón sr. Arndís, Bogi og sunnudagaskólaleiðtogar.

NESKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur organista. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir leiðir stundina með starfsfólki úr barnastarfi. Jólasálmar og sögur. Nánar á neskirkja.is

SANDGERÐISKIRKJA | Aðventuhátíð kl. 17. Hámark 50 gestir sem skulu skrá sig hjá sóknarpresti fyrir fram með pm á fb, sms í 895-2243 eða tölvupósti á srsgs@simnet.is. Kirkjukórinn syngur söngva og sálma undir stjórn Keiths Reeds, hugvekja sóknarprests, stuttir lestrar, almennur söngur, ljós tendruð. Stundin verður í beinu streymi á facebooksíðu Hvalsneskirkju.

SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11, kveikt verður á hirðakertinu, jólasöngvar og jólasaga, mandarínur og piparkökur í lokin.

Guðsþjónusta kl. 13, sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Sungnir verða uppáhalds aðventu- og jólasálmar þeirra sem mæta til kirkju. Kór Seljakirkju leiðir sönginn og Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgel. Messukaffi í lokin.

SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Dr. Ágúst Einarsson prófessor emeritus ræðir um íþróttir fyrr og nú en nýverið kom út bók eftir hann um það efni. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu. Kyrrðarstund miðvikudag kl. 12.

SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Fjársjóðskista fyrir börnin. 3. sunnudagur í aðventu. Organisti er Jón Bjarnason. Prestur er Bolli Pétur Bollason. Aðventustund með helgileik skólabarna kl. 16 í umsjá Jóns Bjarnasonar organista.

VÍDALÍNSKIRKJA | Jólaböll sunnudagaskólans í Vídalínskirkju kl. 10 og 11. Matthildur Bjarnadóttir æskulýðsfulltrúi og fræðarar sunnudagaskólans. Vegna fjöldatakmarkana er skráning á skraning.gardasokn.is fyrir foreldra og börn fædd 2016 eða fyrr (börn fædd 2016 og síðar ekki talin með).

Kyrrðar- og íhugunarstund kl. 20 þar sem lögð verður stund á biblíulega íhugun. Textar tengdir aðventu og jólum íhugaðir. Jóhann Baldvinsson leikur á orgel. Sr. Henning Emil Magnússon leiðir stundina.

VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 10. Stund í umsjá Benna Sig. og Helgu Braga. Fjölskylduhátíð kl. 11. Barnakór Víðistaðakirkju syngur undir stjórn Sveins Arnars organista og sóknarprestur þjónar.