Norðmaðurinn Magnus Carlsen varði í gær heimsmeistaratitilinn í skák þegar hann sigraði Rússann Ian Nepomniachtchi í elleftu einvígisskák þeirra um titilinn.
Carlsen, sem hefur einokað heimsmeistaratitilinn frá árinu 2013, kvaðst „ánægður með taflmennsku“ sína í einvíginu er hann ræddi við blaðamenn í kjölfar sigursins.
Með sigrinum tryggði Carlsen sér 7,5 vinninga gegn 3,5 vinningum Nepomniachtchis.
180 milljónir í verðlaunafé
Carlsen hafði svart í gær. Skákin var í jafnvægi fram í 22. leik þegar Nepomniachtchi virtist leika illa af sér. Carlsen var samt nokkuð lengi að innbyrða vinninginn en eftir 49 leiki hafði Nepomniachtchi fengið nóg og gafst upp.Verðlaunaféð í einvíginu nam 2 milljónum evra, jafnvirði nærri 300 milljóna króna. Fær Carlsen 60% heildarupphæðinni sem nemur 180 milljónum króna. 27