Heiðar Guðjónsson
Heiðar Guðjónsson
Forstjóri Sýnar segir „algjörlega galið“ að framlög til Ríkisútvarpsins verði aukin um 420 milljónir króna, eins og kveðið er á um í fjárlagafrumvarpi næsta árs.

Forstjóri Sýnar segir „algjörlega galið“ að framlög til Ríkisútvarpsins verði aukin um 420 milljónir króna, eins og kveðið er á um í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Blaðamannafélag Íslands gerir ekki athugasemd við aukninguna en vill að styrkir til einkarekinna miðla verði hækkaðir um samtals 30 milljónir króna.

„Að sjálfsögðu er ekki hægt, líkt og er að gerast núna, að það sé verið að styrkja og búa til efnisveitu ríkissins á sama tíma og það er verið að bæta í fjárlög einhvers konar viðbótarstyrk til ríkisútvarps,“ segir Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar.

„Það hlýtur hver maður að sjá að það er ekki í anda nútímasamfélags.“ Því halli augljóslega á einkarekna miðla. „Það er algjörlega fráleitt að ríkið sé í samkeppni við einkaaðila á öllum sviðum og neiti að taka á augljósum samkeppnisyfirburðum sem erlendar efnisveitur hafa, þar sem við höfum, sem innlend efnisveita og fjölmiðill, ríka skyldu gagnvart íslenskri tungu,“ segir Heiðar, skyldum sem erlendar efnisveitur á borð við Netflix þurfa ekki að lúta. Aukningin til Ríkisútvarpsins ein og sér nemur hærri upphæð en allir einkareknir miðlar fá í sinn hlut í styrkjum frá ríkinu. Segist Heiðar þeirrar skoðunar að enginn fjölmiðill ætti að fá ríkisstyrk. ari@mbl.is