Hattar eru í uppáhaldi hjá Örnu.
Hattar eru í uppáhaldi hjá Örnu.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Arna Inga Arnórsdóttir fatahönnunarnemi kaupir flest fötin sín notuð en þegar hún á fyrir því kaupir hún dýrari flíkur sem hún veit að munu endast lengi. Henni finnst heillandi hvernig fólk getur skapað sér ímynd með fatnaði. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is

Fatastíllinn minn er mjög breytilegur eftir líðan eða veðri. Oft finnst mér gott að gera mig extra fína þegar ég er döpur, annars finnst mér yfirleitt skemmtilegast að leika mér og para föt saman sem ég hef kannski ekki gert áður,“ segir Arna þegar hún lýstir fatastílnum sínum.

Arna útskrifast sem fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands í vor og endurspeglast hönnun hennar í fatastílnum hennar. Fötin sem hún hannar eru föt sem hún myndi ganga í eða eru gerð út frá hennar persónulega stíl.

Settir þú alltaf stefnuna á að verða fatahönnuður?

„Já, fatahönnun hefur alltaf verið númer eitt. Ég man eftir mér lítilli að búa til kjóla á Barbie-dúkkurnar mínar úr eldhúspappír og límbandi. Ég hef alltaf verið heltekin af fötum hvort sem það voru föt sem fólkið í kringum mig klæddist eða í sjónvarpinu. Ég byrjaði að sauma ballkjóla á mig fyrir grunnskóla og menntaskólaböll og svo endaði ég hér í Listaháskólanum að læra fatahönnun.“

Hvert sækir þú innblástur?

„Ég sæki mest innblástur með því að fylgjast með fólki í umhverfinu og hvernig fólk getur skapað mismunandi karaktera eða ímynd með klæðnaði. Einnig fylgist ég reglulega með tískuvikunum eða þá leita aftur í tímann og skoða hvað var í tísku þá.“

Hvaða hönnuðir eru í uppáhaldi hjá þér?

„Akkúrat núna eru það Rick Owens, Demna Gvasalia, Ottolinger dúóið, Charlotte Knowles og svo eru það náttúrulega alltaf icon eins og Alexander McQueen, Martin Margiela og Hussein Chalayan.“

Kaupir þú ný föt eða reynir þú að kaupa notað?

„Ég kaupi langflest fötin mín notuð eða ræni gömlum fötum af móður minni. Þegar ég á fyrir því kaupi ég mér stundum fínar dýrari flíkur sem munu endast mér að eilífu.“

Hvað er í tísku núna?

„Að mínu mati þá er mjög mikil litadýrð í tísku, diy-prjón/hekl, „low rise jeans“ og 2000's er svolítið að koma til baka.“

Áttu þér uppáhaldsflík?

„Það breytist. Oft á ég mér uppáhaldsflík í kannski mánuð og ofnota hana og svo breytist það í eitthvað annað. Akkúrat núna þá er svarta loðvestið mitt sem ég rændi af mömmu í uppáhaldi.“

Bestu fatakaup sem þú hefur gert?

„Allar notuðu flíkurnar mínar, þær eru allar með svo mikið líf og eru mér dýrmætar.“

En verstu?

„Vetements-joggingbuxur sem voru allt of dýrar og ég nota aldrei og allt sem ég keypti af „fast fashion“-keðjum í gamla daga.“

Áttu þér uppáhaldsfylgihlut?

„Ég er með hattaæði. Uppáhaldshatturinn minn er loðhattur frá Rússlandi sem mamma mín átti.“

Hvað er nauðsynlegt að eiga í vetur?

Fyrir mig þá finnst mér nauðsynlegt að eiga nóg af jökkum og kápum til þess að „layera“, góða loðhatta og trefil.“