Tónlistin styttir sjómönnum stundir við veiðar og ekkert sem jafnast á við að hlýða á gullaldar-rokk eða klassísku meistarana á meðan horft er yfir hafflötinn við sólarupprás.

Tónlistin styttir sjómönnum stundir við veiðar og ekkert sem jafnast á við að hlýða á gullaldar-rokk eða klassísku meistarana á meðan horft er yfir hafflötinn við sólarupprás.

Heyrnartólaframleiðandinn Master & Dynamic er leiðandi í hönnun hágæðaheyrnartóla sem bæði eru smíðuð úr bestu fáanlegu efnum og búa yfir hljóðgæðum í sérflokki.

Nýjasta viðbótin eru MG20-leikjaheyrnartólin en þau eru búin áfestanlegum hljóðnema sem á að tryggja að röddin heyrist vel hvort sem tala þarf við liðsmenn í æsilegum tölvuleik eða hringja símtal í land.

Verðið er í samræmi við gæðin, og rúmlega það, því hjá vefversluninni www.masterdynamic.com kosta MG20-heyrnartólin 449 evrur.