Bláfjöll - Skíði
Bláfjöll - Skíði — Morgunblaðið/Eggert
Opið var í Bláfjöllum í gær og í fyrradag og skíðatímabilið því formlega hafið. Um 2.500 manns gerðu sér ferð upp í Bláfjöll í gær og að sögn rekstrarstjóra skíðasvæðanna var færið með besta mögulega móti.
Opið var í Bláfjöllum í gær og í fyrradag og skíðatímabilið því formlega hafið. Um 2.500 manns gerðu sér ferð upp í Bláfjöll í gær og að sögn rekstrarstjóra skíðasvæðanna var færið með besta mögulega móti. Viðraði vel til skíða framan af degi en þó tók að blása þegar líða fór að kvöldi. Útlit er fyrir að lokað verði um helgina. „Það vill enginn sitja í lyftu í 30m/sek.,“ sagði rekstrarstjóri Bláfjalla.