Uppstillingarnefnd Eflingar hefur ákveðið að auglýsa eftir tilnefningum til setu í stjórn Eflingar á A-lista. Þetta er í fyrsta sinn í sögu félagsins sem þessi leið er farin, segir í tilkynningu Eflingar frá í gær.

Þegar Sigurður Bessason hætti sem formaður Eflingar kom trúnaðarmannaráð með tillögu um að auglýst yrði eftir tilnefningum um formann en sú tillaga var ekki auglýst opinberlega.

Segir Efling að með þessum hætti sé lýðræðislegur réttur félagsmanna tryggður, til að taka þátt í starfinu.

Allir fullgildir félagsmenn geta tilnefnt sjálfa sig eða annan fullgildan félagsmann. Uppstillingarnefnd metur hæfi þeirra sem tilnefndir eru og horfir auk þess til þess að stjórnin endurspegli félagsmenn með tilliti til uppruna, kyns, starfsgreina, aldurs og annarra þátta.

Áhugasamir geta sent tilnefningar á efling@efling.is eða til skrifstofu Eflingar. Skilafrestur tilnefninga er mánudagurinn 3. janúar næstkomandi. Fylgja þarf nafn, kennitala, vinnustaður, netfang og sími viðkomandi.