Jólaandinn og hlýleikinn réðu ríkjum þennan þriðja sunnudag í aðventu í Jólaþorpinu í Hafnarfirði. Þessir skemmtilegu jólaálfar glöddu unga sem aldna við jólatréð í þorpinu.
Jólaandinn og hlýleikinn réðu ríkjum þennan þriðja sunnudag í aðventu í Jólaþorpinu í Hafnarfirði. Þessir skemmtilegu jólaálfar glöddu unga sem aldna við jólatréð í þorpinu. Árlegt jólaball sunnudagaskólans í Fríkirkjunni í Hafnarfirði var einnig haldið í gær, þar sem Fríkirkjubandið lék fyrir dansi. Skemmtu gestir sér vel og önduðu að sér sönnum hafnfirskum jólaanda.