Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Badmintonmeistarinn Broddi Kristjánsson fékk bronsverðlaun í einliðaleik í flokki 60-65 ára á heimsmeistaramóti öldunga í Huelva á Spáni. „Ég er formlega hættur keppni en held áfram að leika mér og það kitlar að taka eitt mót til viðbótar,“ segir kappinn, sem fagnaði 61 árs afmæli sínu í liðinni viku, nokkrum dögum eftir að hafa verið á verðlaunapalli. Drífa Harðardóttir og Elsa Nielsen gerðu betur en Broddi og eiga eflaust mikið eftir, en þær urðu heimsmeistarar í tvíliðaleik kvenna í flokki 40-44 ára auk þess sem Drífa fékk líka gull í tvenndarleik með Jesper Thomsen frá Danmörku.
Broddi er sigursælasti Íslendingurinn í meistaraflokki í badminton. Hann hefur samtals 43 sinnum orðið Íslandsmeistari í einliðaleik karla, tvíliðaleik og tvenndarkeppni, þar af 14 sinnum í einliðaleik. Hann hefur líka keppt oftast allra fyrir hönd Íslands og verið fulltrúi þjóðarinnar í Evrópukeppni, heimsmeistarakeppni og á Ólympíuleikum. Hann hefur tekið þátt í erlendum aldursflokkamótum með góðum árangri eftir að hann hætti keppni á meðal þeirra bestu og alltaf komið heim með verðlaunapening. Hann fékk silfur á EM 2008, gull í +45 ára flokki á HM 2009 þar sem hann var elstur keppenda, brons á HM 2016 og aftur nú. „Ég er ánægður með þriðja sætið því ég verð að taka líkamann með í reikninginn, það er slit hér og þar.“
Eplið og eikin
Undirbúningurinn fyrir svona mót er ekki eins stífur og Broddi átti að venjast þegar hann var upp á sitt besta. Hann reynir að mæta í hóptíma tvisvar í viku og hlaupa og styrkja sig þess á milli. „Ég verð að hugsa vel um hvíldina á milli æfinga,“ segir hann. Bætir við að yfirbragðið á aldursflokkamótunum sé mun afslappaðra en á helstu mótunum og margir keppi bara til þess að vera með. „Það á ekki við um okkur; við mætum alltaf til þess að ná eins góðum árangri og hægt er.“
Þegar Broddi var sjö ára byrjaði hann að æfa badminton hjá TBR. „Ég fór fyrst á æfingar með foreldrum mínum og eitt leiddi af öðru,“ segir hann. Bætir við að aðstæður hafi verið frekar frumstæðar fyrstu árin. Fyrst hafi verið æft í Valsheimilinu og svo í Álftamýrarskóla og Höllinni áður en TBR-húsin hafi verið tekin í notkun 1976. Hulda Guðmundsdóttir, móðir Brodda, var margfaldur meistari, en faðirinn, Kristján Benjamínsson, var virkari í félagsmálunum, var til dæmis formaður TBR og Badmintonsambandsins. Eiður Ísak og Andri, synir Brodda og Helgu Þóru Þórarinsdóttur, hafa haldið uppteknum hætti í fjölskyldunni en Helga hefur látið sér nægja að vera í klappliðinu.
Sigurviljinn og keppnisskapið hafa drifið meistarann áfram. „Þegar ég hef tapað inn á milli hef ég alltaf náð að koma tvíefldur til baka í næsta mót.“ Broddi segir að ákveðnin skili sér áfram inn í aldursflokkamótin. „Hún eldist ekki af manni og þetta er alltaf jafn gaman en ég verð reyndar svolítið pirraður þegar meiðsli setja strik í reikninginn. Ég væri til í að vera aðeins minna slitinn og verð að sjá til með framhaldið.“