Samþykkt var nær einróma á fundi íbúasamtaka Bústaða- og Fossvogshverfis í síðustu viku að skora á Dag B. Eggertsson borgarstjóra að framlengja frest til athugasemda um skipulagsbreytingu á Bústaðavegi. Frestur til athugasemda rennur út 15.

Samþykkt var nær einróma á fundi íbúasamtaka Bústaða- og Fossvogshverfis í síðustu viku að skora á Dag B. Eggertsson borgarstjóra að framlengja frest til athugasemda um skipulagsbreytingu á Bústaðavegi. Frestur til athugasemda rennur út 15. desember en samtökin vilja að hann verði framlengdur til 1. apríl á næsta ári.

Frá þessu greinir Gísli Kr. Björnsson, formaður samtakanna, í grein í Morgunblaðinu í dag. Ljóst sé að of stuttur tími hafi verið gefinn til að gera athugasemdir við tillögur að breytingum í hverfinu. Þá segir Björn íbúa hafa gróskumiklar hugmyndir sem vert sé að borgaryfirvöld líti til. 16