Hinn 8. desember sl. stóðu íbúasamtök Bústaða- og Fossvogshverfis fyrir fundi vegna nýkynntra hugmynda um skipulagsbreytingu á Bústaðavegi. Raunar tóku tillögurnar til allra hverfanna í póstnúmerum 108 og 103, en skipting hverfisins í smærri einingar gerir það að verkum að einungis Bústaðavegurinn kemur til beinna áhrifa á Bústaða- og Fossvogshverfi.
Skorað var á borgarstjórann, Dag B. Eggertsson, og Eyþór Laxdal Arnalds, leiðtoga sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem oddvita tveggja stærstu stjórnmálaflokkanna í Reykjavík, að mæta og gera grein fyrir afstöðu sinni. Fundurinn var málefnalegur í heild sinni, og hafði borgarstjóri orð á því að hann væri með þeim málefnalegri af þessu tagi sem hann hefði setið.
Skipulagsmál eru í brennidepli þessi misserin, bæði hjá þeim sem eru fylgjandi núverandi meirihluta borgarstjórnar og þeim sem eru andvígir honum. Án þess að pólitísk afstaða sé aðalefni þessarar greinar, þá er það oftast skylt skeggið hökunni og erfitt að ræða annað án þess að hitt dragist inn í umræðuna.
Skipulagsmál eru nefnilega hápólitísk, ekki síst út frá því sjónarmiði að kjörnir fulltrúar stýra þeim. Stundum vill það misfarast að sú stýring er í umboði kjósenda, sem eru jú skatt- og útsvarsgreiðendur, og vilji einstaka stjórnmálamanna og embættismanna sjáist í excelskjölum og tölvuforritum, þvert á vilja íbúanna. Það er auðvelt að láta allt líta vel út í excelskjölum eða tölvuforritum. Því kynntumst við í hruninu. Það er hins vegar erfiðara að láta það falla að vilja íbúanna út frá reynslu þeirra sjálfra, þótt erfiðleikarnir séu illskiljanlegir. Í því ljósi er skorað sérstaklega á stjórnmálamennina og embættismennina í borginni til að leggja sig fram um að hlusta á raddir íbúa Bústaða- og Fossvogshverfis. Það hefur ekki verið gert; fyrr en á fundinum og þá af herramönnunum báðum, frummælendur fundarins.
Málflutningur frummælendanna beggja var einlægur, djúpur og skýrandi, á hvora hliðina sem er. Þeir komu sínum sjónarmiðum vel á framfæri, með góðum skýringum og ekki fékkst annað séð en að á þá báða væri hlustað. Á fundinum, sem rúmlega 90 manns sóttu og tæplega 400 fylgdust með á vefstreymi, tóku 15 manns til máls eftir að frummælendur höfðu lokið máli sínu, en samkvæmt fundargerð var málflutningur þeirra allra á svipaðan veg. Hann einkenndist af andstöðu í garð þessara fyrirliggjandi tillagna. Reynslumiklar raddir frumbyggja í hverfinu, fólks sem hafði alist upp og búið í hverfinu frá fæðingu og því sem næst tjáð frummælendum áhyggjur sínar af þrengingum Bústaðavegar, aukinnar umferðar í gegnum barnmargar hliðargötur hverfisins, gjarnan í námunda við skóla, leikskóla og leiksvæði barnanna. Augljóst er að það viljum við hverfisbúar ekki sjá. Þó skal tekið fram að fundurinn var lagðist ekki gegn breytingum heldur þessum umræddu tillögum.
Hluti hins fyrirhugaða byggingarsvæðis sem meirihlutinn vill byggja á núna, er umferðareyja sem skilur að akveg Bústaðvegar og bílastæðin við fjórbýlishús sem standa norðan við Bústaðaveg, á milli Grensásvegar og Réttarholtsvegar. Samkvæmt yfirlitsmyndum (grófunnum) teygja hin nýju fjölbýlishús, níu talsins á þessum hluta (umferðareyjunni), sig út á götuna og þrengja þannig töluvert að götunni í núverandi mynd. Ljóst er því að töluvert þarf að eiga við veginn sjálfan, svo hann geti áfram annað umferð í gegnum hverfið. Meðal þess sem fundurinn kallaði eftir var aukið öryggi við Bústaðaveg, en ekki fæst séð hvernig því verður fylgt eftir.
Eftir að Miklabrautin og Sæbrautin hættu að anna umferð borgarbúa hefur umferðin færst í töluverðu og alltof miklu magni yfir á Bústaðaveg og inn í aðrar götur hverfisins til að komast yfir í aðra hluta borgarinnar. Það sjáum við sem þekkjum hverfið. Við búum þarna, og tökum eftir því, áþreifanlega, að umferðin um Hæðargarð og Sogaveg, sem dæmi, hefur stóraukist á síðustu 4-5 árum. Meðal íbúanna eru gróskumiklar hugmyndir sem hægt er að vinna út frá, t.d. í umferðaröryggismálum, en jafnframt með ásýnd og fegurðarskyn í huga. Til þess að þær tillögur geti legið fyrir, ásamt athugasemdum íbúa nærliggjandi fjölbýlishúsa við Bústaðaveg, þurfa borgaryfirvöld að hlusta á þá sem reynsluna hafa. Í því skyni vil ég benda á vísdómsorð eins íbúa hverfisins til áratuga: Greindur nærri getur, reyndur veit þó betur. Reynslan sem ég vísa til er áratuga löng reynsla íbúa hverfisins og þær raddir sem heyrðust á fundinum. Frestur til athugasemda rennur út 15. desember næstkomandi. Ljóst er að það er of stuttur tími til athugasemda nærliggjandi lóðahafa.
Á fundinum var samþykkt nær einróma tillaga um að þessi frestur verði framlengdur til 1. apríl 2022. Með vísan til þess sem hér hefur verið fjallað um er áfram skorað á Dag B. Eggertsson að beita sér fyrir því að lengja frestinn í samræmi við lýðræðislegan vilja fundarins.
Höfundur er lögmaður í Reykjavík og formaður íbúasamtaka Bústaða- og Fossvogshverfis.