Sighvatur Björgvinsson
Sighvatur Björgvinsson
Eftir Sighvat Björgvinsson: "Orðið „mannkyn“ merkir ekki bara kyn karla heldur kyngreind alls þess mannfólks sem jörð okkar byggir. Þarf virkilega að segja málfarsráðunaut RÚV það?"

Um sl. áramót fór fram á RÚV það sem áður var nefnt val á manni ársins . Nú brá svo við að í stað þess var sagt í RÚV að fram hefði farið val á manneskju ársins . Mér er sagt að ástæðan hafi verið sú að þú – málfarsráðunautur ríkisútvarpsins – hafir ekki viljað viðurkenna í orði að karlmenn og kvenmenn gætu hvor tveggja verið menn . Værir sem sé ekki sammála Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, þegar hún tjáði sig með þessum hætti í kosningabaráttu sinni: „Fólk á ekki að velja mig vegna þess að ég er kona, heldur vegna þess að ég er maður .“ Þitt álit væri að með engu móti mætti rugla kynjunum saman með því að kalla bæði konur og karla menn .

Tæknimaður

Ef svo er, hvernig stendur þá á því að þú heimilar ríkisútvarpinu að greina frá því að eftir sérhvern þátt sem fluttur er í RÚV og eftir sérhvern fréttatíma sé sagt að tækni maður þáttarins hafi heitið þetta og hitt – karlmanns- eða kvenmannsnafni? Ef þú telur brýna nauðsyn bera til að kyngreint sé í starfsheiti og í tegundarheiti ellegar afstöðunafngift ber þá að sundurgreina t.d. mannúð og kvenúð – eftir því hvort kynið kemur við sögu – ellegar menningu og kvenningu, manngæsku og kvengæsku, manngreinarálit og kvengreinarálit o.s.frv. Eða ef þú vilt ekki kyngreina eftir því sem þú segir kyngreiningarheitið vera, hvernig viltu þá orða þetta undir samheitinu manneskja? Að tækni manneskja þáttarins hafi verið...?

Málvitund

Við Íslendingar þurfum að gera okkur grein fyrir því – og gerum það flestöll – að við erfðum málskilning og málvitund sem okkur ber að varðveita. Engu máli skiptir í því sambandi hvort kynin eru tvö eða sautján. Öll erum við menn.

Málfarsráðunautur RÚV skiptir þar máli. Fráleitt er að hún beiti valdi sínu til þess að rugla málskilning landsmanna og taka upp kyngreiningu þar sem kyngreining er ekki viðhöfð og hennar er engin þörf. Karlmaður og kvenmaður eru bæði menn . Menning á við bæði kynin, mann úð líka, mann gæska einnig. Sömuleiðis mann göfgi sem og allar þær nafngiftir sem táknaðar eru með heitinu maður. Karlmaður og kvenmaður eru bæði maður. Sá sem kjörinn er maður ársins getur verið hvort heldur sem er karl eða kona – eða aðhyllst hvert það kyn sem sagt er vera eiginlegt mannkyninu. Hví segi ég það? Ég segi það vegna þess að orðið „mannkyn“ merkir ekki bara kyn karla heldur kyngreind alls þess mannfólks sem jörð okkar byggir. Þarf virkilega að segja málfarsráðunaut RÚV það? Eða er menntun hennar ofar skynsemi?

Höfundur er fv. heilbrigðisráðherra.

Höf.: Sighvat Björgvinsson