Guðrún Margeirsdóttir fæddist 25. ágúst 1929 í Vestmannaeyjum. Hún lést 1. desember 2021 á Hjúkrunarheimilinu Eir.

Foreldrar hennar voru Margeir Guðmundur Rögnvaldsson verkamaður í Vestmannaeyjum, f. 10. júní 1898 í Hnífsdal, d. 20. nóvember 1930, og Anna Gíslína Gísladóttir húsmóðir og verkakona í Vestmannaeyjum, f. 6. júlí 1898, d. 11. september 1984.

Systkini Guðrúnar eru Sigurþór Margeirsson bifvélavirkjameistari og forstjóri Hafrafells, f. 27. október 1925 á Kalastöðum á Stokkseyri, d. 22. ágúst 2002, og Sigurður Valdimar Ragnar Margeirsson, f. 17. september 1928, d. 5. mars 1931. Hálfsystkini, sammæðra, eru Trausti Sigurðsson vélstjóri, stýrimaður og starfsmaður ÍSALS, f. 14. desember 1932 á Hæli, d. 22. maí 2019, og Brynja Sigurðardóttir húsmóðir og verkakona, f. 20. júní 1934 á Hæli, d. 23. september 2011.

Guðrún ólst upp með móður sinni og Sigurði Sigurðssyni járnsmíðameistara, f. 11.5. 1889 í Kirkjulandshjáleigu í Austur-Landeyjum, d. 24.4. 1974, stjúpföður sínum á Hæli við Brekastíg 10 í Vestmannaeyjum.

Guðrún lauk námi í Hjúkrunarskóla Íslands 1951. Hún vann m.a. við Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum 1951-1952, Kleppsspítalann 1953, Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg 1953-1954 og á fæðingardeild Landspítalans 1954-1957. Þá vann hún á Midway Hospital í St. Paul í Minnesota 1957-1963, á Landakotsspítala 1964-1968 en síðan á Landspítalanum þar sem hún lauk námi í svæfingahjúkrun 1970. Guðrún var svæfingahjúkrunarkona á Landspítalanum frá 1970 og deildarstjóri frá 1976 og fram á tíunda áratuginn. Hún var ógift og barnlaus.

Útför Guðrúnar verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag, 13. desember 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á youtubesíðu Grafarvogskirkju.

Hlekkur á streymi:

https://www.mbl.is/andlat

Gunna frænka, samferða mér í 34 ár. Hvað dettur mér fyrst í hug: Stjórnsöm, gjafmild, vinur vina sinna, ræktarsöm, hannyrðakona, svæfingahjúkka. Fyrstu minningarnar eru matarboð, matarboð, matarboð, jólaboð, kaffiboð, vöfflur og pönnukökur. Alltaf meira en nóg af öllu og oftar en ekki sendur heim með nesti.

Gunna frænka var systir tengdamömmu og miðpunktur fjölskyldunnar. Gunna frænka var ekki allra en þú áttir hauk í horni ef þú varst í sama liði. Gummi, við erum boðin í mat til Gunnu frænku og gjarnan fylgdi með „biddu hann að taka með sér borvélina“. Hún leitaði oft til mín með alls konar viðvik stór og smá. Alltaf kurteis en kunni upp á 10 að ýta á réttu takkana.

Gunna reyndist mörgum í fjölskyldunni afar vel og við sem þekktum hana best nutum góðs af því. Á aðfangadag fékk ég það hlutverk að sækja Gunnu frænku og alla jólapakkana. Ekki mátti á milli sjá hvor væri spenntari fyrir pökkunum Gunna eða krakkarnir. Helst vildi hún að pakkarnir frá henni yrðu opnaðir fyrst af öllum.

Takk fyrir samfylgdina Gunna mín og ég ætla að leyfa mér að segja að lokum: Blessuð sé minning Gunnu frá Hæl.

Guðmundur Karl Bergmann.

Gunna frænka er látin. Það er margs að minnast. Hún átti langt og gott líf og lifði lífinu lifandi.

Faðir Gunnu og bróðir dóu báðir úr berklum þegar hún var á öðru ári og hún og Sigurþór, bróðir hennar, glímdu einnig við berkla. Hún var því talsvert frá í skóla vegna veikinda og auðvelt er að ímynda sér óttann sem veikindin ollu í ljósi afdrifa föður og bróður. Sigurþór ólst upp hjá móðurömmu og afa en Gunna fylgdi móður sinni og síðan stjúpföður, Sigurði, þau bjuggu á Hæli við Brekastíg í Vestmannaeyjum. Hún eignaðist þar tvö yngri systkini, Trausta og Brynju Sigurðarbörn.

Gunna lauk námi í Hjúkrunarskóla Íslands 1951 og bætti síðan við sig í menntun og reynslu bæði í Svíþjóð og Bandaríkjunum en einnig síðar hér heima. Á þeim tíma, á sjötta áratug síðustu aldar, var það ekki svo algengt að fólk færi utan til náms eða til vinnu enda fannst frændfólkinu ekki amalegt að eiga frænku í henni Ameríku. Systkinabörnin glöddust líka innilega þegar hún kom í heimsókn með fulla tösku af glæsilegum gjöfum sem ekki voru fáanlegar á Íslandi. Það var alltaf spenningur í loftinu þegar von var á Gunnu frænku í heimsókn til Eyja. Eftir gos hélt hún heimili fyrir móður sína og stjúpföður í Reykjavík.

Gunna frænka hafði alltaf nóg fyrir stafni, fór gjarnan í leikhús og á tónleika o.fl. með vinkonunum sem nóg var af enda var hún alltaf ræktarsöm. Hún var í rauninni aldrei ein og leiddist aldrei. Gunna var gríðarleg hannyrðakona, saumaði út, prjónaði og skar út í tré. Hún gaf nánast allt sem hún gerði og gripir frá henni prýða ótal heimili vina og vandamanna. Þá eru hin fjölmörgu matar- og kaffiboð hennar, sem hún hélt fram eftir öllu, einnig eftirminnileg. Þá var Gunna betri en engin í að aðstoða fólk við að fá læknishjálp og komast að í aðgerðir.

Gunna frænka átti afar gott bókasafn og las alla tíð mjög mikið, hafði t.d. mikinn áhuga á ættfræði og sagnfræði. Hún var afskaplega vel að sér um margt, virtist muna allt sem hún hafði lesið og sagði endalaust sögur af því sem hún rifjaði upp, fannst skemmtilegt að segja sögur frá gömlum tíma, sérstaklega frá Eyjum. Það er mikill missir að geta ekki lengur flett upp í Gunnu frænku sem allt vissi. Hún sótti fjölda námskeiða í HÍ um Íslendingasögurnar o.fl. og ferðaðist samfara því á fornar slóðir sagnanna, bæði hér heima og um Bretlandseyjar og Frakkland. Gunna ferðaðist raunar alla tíð mjög mikið, bæði um Ísland og Evrópu og Ameríku og var fróð um málefni Vestur-Íslendinga. Hún var jafnframt afar sjálfstæð og sterk kona en gat einnig verið stjórnsöm og gert mannamun þegar sá gállinn var á henni enda hafði hún sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Umræður og rökræður urðu oft mjög skemmtilegar.

Útför Gunnu verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudaginn 13. desember. Hennar ósk var að fá að hvíla hjá litla bróður sínum, Ragnari, sem dó svo ungur og þar verður duftkeri hennar komið fyrir.

Blessuð sé minning Gunnu frænku.

Anna, Sigurður, Helga, Hugrún og Jóhann Ingi.

Árið 1922 byggðu vinirnir Hannes og Sigurður parhús við Brekastíg í Vestmannaeyjum. Þeir nefndu húsið Hæli, því að það skyldi verða sannkallað hæli. Hannes og Vilborg kona hans bjuggu austanmegin með dætrum sínum, Möggu, Jónu og Ástu. Sigurður var einhleypur en kvæntist síðar Önnu, ekkju Margeirs. Anna kom með þrjú börn, þ.á m. Guðrúnu, inn í hjónabandið.

Hér hefst einstakur vinskapur Ástu Hannesdóttur og Guðrúnar Margeirsdóttur, báðar fæddar 1929. Snemma morguns opnar Gunna dyrnar inn í austurhlutann og kallar: Gunngunn komin!

Stelpurnar á Hæli mega leika sér og er oft glatt á hjalla, sungið, spilað og trallað. Vinskapur þeirra endist til æviloka eða rúm 90 ár.

En lífið er ekki bara leikur. Gunna missir pabba sinn þegar hún er á öðru ári og Ásta mömmu sína þegar hún er á þriðja ári, þarna eiga þær sameiginlega sorg en strengurinn milli þeirra því enn sterkari. Þær eru samskóla en síðan fer Ásta í húsmæðraskóla og Gunna í hjúkrunarnám.

Í hvítum stífuðum kjól með hvítan stífaðan kappa vann glæsileg Gunna Mar á Sjúkrahúsinu í Eyjum 1951-1952, á Kleppsspítala 1953, á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg til 1954 og á fæðingadeild Landspítala til 1957. Í BNA á Midway Hospital, St. Paul í Minnesota til 1963, á Landakoti til 1968, þá á Landspítala og lauk námi í svæfingahjúkrun 1970. 1976 varð hún deildarstjóri.

Hún flaug oft til BNA til að heimsækja vini. Komin þaðan eitt sinn opnaði hún ferðatöskuna og upp reis ilmský af guðdómlegri Youth-Dew-angan. Við heilluðumst og notum enn í dag.

Gunna sagði sögur úr BNA, t.d. þessa: Vinnukona læknishjóna hafði lengi dáðst að öllu kampavíni þeirra og langaði svo að baða sig í því. Dag einn tæmdi hún flöskurnar ofan í karið, baðaði sig og hvílík nautn! En, úff, ekki gat hún hellt víninu ofan í niðurfallið og allar flöskurnar tómar? Nei, þá myndi hún tapa vinnunni! Því hellti hún öllu kampavíninu aftur á flöskurnar og tókst m.a.s. að setja korktappana aftur í. Það þótti svo mikið afrek að hún var ekki rekin.

Þegar Gunna hló hristist hún af hlátri, svo smitandi að við hlógum þar til við stóðum á öndinni.

Á meðan Ásta og Guðmundur maki hennar búa í Keflavík með Hönnu, f. 1948, stoppar Gunna í nokkra daga. Í þá daga tók það þrjá tíma að aka aðra leið frá Reykjavík. 1955 fæddist Ragnar, sem Gunna kallar bússabarn, og hún kyssir hann mikið. Gunna: „Fyrst kom postulínsdúkkan Hanna og svo þetta krútt, með þessar yndislegu kinnar!“

1956 gekk lömunarveiki. Ásta veikist og er sett á spítala. Gunna passar börnin á meðan. Gullfallegur Matthías, fæddur 1958, bjargar heilsu mömmu sinnar, 1960 fæðist Margrét Rún eða Gagga Ún.

Gunna er einhleyp, því erum við líka hennar börn. Hún gefur okkur ópal og súkkulaði. Síðar koma tertur, rjóma- eða sykurpönnukökur. Í frístundum vinnur hún að hannyrðum svo fullkomnum að þær ættu heima á safni. Hún gefur okkur dúka, teppi, föt og handsaumaðar brúður. Og bækur.

Vinkonurnar frá Hæli höfðu hvern dag lífsins samband. Þín verður því sárt saknað.

Elsku Gunna, ástarþakkir fyrir allt! Guð blessi þig og verndi alla tíð.

F.h. Ástu Hannesdóttur,

Hanna, Ragnar, Matthías og Margrét Guðmundar- og Ástubörn.

Nú er brotið blað í lífsins bók Guðrúnar Margeirsdóttur eða Gunnu Margeirs, eins og við kölluðum hana alltaf. Og fram streyma minningar alveg frá því að við vorum litlar stelpur í Hvassaleitinu. Minningar eins og hlátursköstin sem þær fengu hún og mamma að okkur fannst út af engu. Estée Lauder-ilmvatnslyktin sem okkur fannst svo góð og vissum þá að Gunna var komin í heimsókn. Það gustaði af henni og aldrei nein lognmolla í kringum hana. Í gegnum árin höfum við verið svo heppnar að eiga margar góðar stundir með henni ásamt foreldrum okkar eins og lautarferðir með alls konar góðgæti í tösku og svo sumarbústaðarferðir í hjúkrunarkvennabústaðinn í Munaðarnesi. En þær mamma voru báðar hjúkrunarkonur með stóru Hái.

Gunna var bókhneigð og mikill lestrarhestur og er mjög sterkt í minningunni umræður um bækur og bókmenntir. Hún var ótrúlega flink í handavinnu og erum við svo heppnar að eiga ýmislegt fallegt handverk eftir hana. Við og börnin okkar höfðum mikla matarást á Gunnu, hún var svo dugleg að bjóða okkur heim, og fannst allt gott sem hún eldaði og pönnsurnar hennar þær bestu. Fyrir okkur átti Gunna stórt líf, það var fjölskyldan hennar sem henni var mjög annt um og svo var það allt fólkið hennar í Minnesota. Já hún var heimsdama, alltaf svo fín og flott. Hún Gunna var stórvinkona fjölskyldunnar og reyndist okkur svo ómetanlega vel í blíðu og stríðu og tók þátt í lífi okkar, stóru jafnt sem smáu. Með virðingu og þökk fyrir allt og allt elsku Gunnar okkar.

Hulda og Rannveig (Ranna).