22 einstaklingar frá Afganistan eru væntanlegir til landsins næsta þriðjudag en þeir lentu í morgun í Georgíu. Heildarfjöldi þeirra sem íslensk stjórnvöld hafa þá tekið á móti er 83.

22 einstaklingar frá Afganistan eru væntanlegir til landsins næsta þriðjudag en þeir lentu í morgun í Georgíu. Heildarfjöldi þeirra sem íslensk stjórnvöld hafa þá tekið á móti er 83.

Fram kemur í sameiginlegri tilkynningu frá forsætisráðuneytinu, félagsmálaráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og dómsmálaráðuneytinu að 40 einstaklingar sem fengu boð frá íslenskum stjórnvöldum hafi þegið boð um skjól í öðru ríki.

Taka á móti 120

Ríkisstjórnin samþykkti í ágúst að taka á móti allt að 120 einstaklingum frá Afganistan vegna ástandsins sem skapaðist þar í landi í kjölfar valdatöku talíbana. Áhersla var lögð á þá sem unnu með eða fyrir Atlantshafsbandalagið, fyrrverandi nemendur alþjóðlega jafnréttisskólans á Íslandi og einstaklinga sem áttu rétt á fjölskyldusameiningu eða voru þegar komnir með samþykkta umsókn um dvalarleyfi.

Stjórnvöld í Katar aðstoðuðu íslensk stjórnvöld við að koma hluta hópsins þangað sem fulltrúar frá íslenskum stjórnvöldum tóku á móti honum og fylgdu til Íslands. Ráðuneytin segja að Útlendingastofnun og borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hafi átt í náinni samvinnu við stjórnvöld í Georgíu, Svíþjóð og Katar til að gera fólkinu kleift að komast hingað til lands og sameinast fjölskyldum sínum en um sé að ræða flóknar aðgerðir sem krefjist mikillar samhæfingar þar sem huga þurfi að öryggi allra.