Fyrsta skáldsagan Kjartan Atli Kjartansson með Lóu og Börk Saman í liði .
Fyrsta skáldsagan Kjartan Atli Kjartansson með Lóu og Börk Saman í liði . — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Kjartan Atli Kjartansson, umsjónarmaður Domino's körfuboltakvölds á Stöð 2, situr ekki auðum höndum, en hann hefur sent frá sér þrjár bækur á skömmum tíma og er með nokkrar í vinnslu. Bókin Stars of the NBA eftir hann kom út í Bandaríkjunum um nýliðin mánaðamót, en kveikjan var Hrein karfa, sem hann skrifaði og Sögur útgáfa gaf út í fyrra. Sama útgáfa sendi líka á dögunum frá sér ungmennabókina Lóu og Börk Saman í liði, fyrstu skáldsögu Kjartans Atla.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Kjartan Atli Kjartansson, umsjónarmaður Domino's körfuboltakvölds á Stöð 2, situr ekki auðum höndum, en hann hefur sent frá sér þrjár bækur á skömmum tíma og er með nokkrar í vinnslu. Bókin Stars of the NBA eftir hann kom út í Bandaríkjunum um nýliðin mánaðamót, en kveikjan var Hrein karfa, sem hann skrifaði og Sögur útgáfa gaf út í fyrra. Sama útgáfa sendi líka á dögunum frá sér ungmennabókina Lóu og Börk Saman í liði, fyrstu skáldsögu Kjartans Atla.

„Þetta er eins og að flytja kaffi inn til Brasilíu,“ segir Kjartan Atli um bókina um stjörnurnar í bandarísku NBA-deildinni, en fyrir þá sem ekki vita eru Bandaríkin vagga körfuboltans. „Þetta er mjög skemmtilegt og til þess var leikurinn gerður.“

Óskuðu eftir bókum

Tómas Hermannsson hjá Sögum útgáfu hefur verið í góðum tengslum við bandaríska útgáfufyrirtækið Abbeville undanfarin ár. „Við höfum gert rúmlega 20 fótboltabækur fyrir Abbeville og þetta er fyrsta körfuboltabókin, en önnur um goðsagnir í NBA hefur verið pöntuð og Kjartan Atli skrifar hana líka.“

Eftir að Hrein karfa kom út voru valdir kaflar þýddir og sendir til Abbeville í þeirri von að bókin yrði gefin út á ensku. Forlagið vildi hins vegar nýja bók um núverandi stjörnur í NBA og hún er byrjunin á bókaflokki, að sögn Tómasar.

Stars of the NBA fjallar um 28 leikmenn í deildinni. „Þetta eru mest spennandi leikmennirnir,“ segir Kjartan Atli, sem bíður spenntur eftir því að fá bókina. „Hún er á leiðinni í pósti.“ Fjallað er um einn leikmann á hverri opnu með stórri mynd og nokkrum upplýsingamolum til viðbótar við textann. „Hugsunin er að efnið sé aðgengilegt fyrir alla, að þeir sem eru að kynnast íþróttinni geti kynnst leikmönnunum betur.“

Kjartan Atli bendir á mismunandi aðstæður í körfuboltauppeldinu í Evrópu og Bandaríkjunum og tekur Serbann Nikola Jokic hjá Denver Nuggets sem dæmi en hann var útnefndur besti og mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar á liðnu tímabili. „Hann uppgötvaðist fyrir slysni.“

Kjartan Atli hefur mikla reynslu sem leikmaður og þjálfari auk þess sem hann var kennari í Álftanesskóla fyrir nokkrum árum. „Það er einn skemmtilegasti vetur sem ég man eftir, mjög gefandi,“ rifjar hann upp. „Ég blanda reynslu minni sem þjálfari og kennari inn í bókaskrifin,“ segir hann um Lóu og Börk Saman í liði . Hann hafi þjálfað framúrskarandi hóp krakka hjá Stjörnunni, sem hafi orðið Íslandsmeistari öll árin. Til að byrja með hafi aðeins strákar verið í hópnum en síðan hafi þrjár stelpur ári yngri bæst við og tvær þeirra spilað lengi með strákunum. „Ég sá þarna bræðra- og systralag, sem var svo fallegt, og ég vildi fanga það inn í sögu.“

Bókin er sú fyrsta í væntanlegri ritröð og tvær næstu eru á teikniborðinu. „Ég hef stillt upp framvindunni og er byrjaður á næstu bók,“ segir Kjartan Atli. „Körfuboltinn er farartæki, sem ýtir sögunni áfram, en hún getur átt við hvaða íþrótt sem er.“