Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason nýtur mests trausts ráðherra meðal almennings, samkvæmt nýrri könnun MMR, eða hjá 61% aðspurðra. Næstmest traust hefur Katrín Jakobsdóttir, eða 60%. Fæstir treysta Jóni Gunnarssyni, eða 16%.

Ásmundur Einar Daðason nýtur mests trausts ráðherra meðal almennings, samkvæmt nýrri könnun MMR, eða hjá 61% aðspurðra. Næstmest traust hefur Katrín Jakobsdóttir, eða 60%.

Fæstir treysta Jóni Gunnarssyni, eða 16%. Nokkur munur er á trausti til ráðherra eftir flokkslínum en ráðherrar Framsóknarflokksins njóta meira trausts og minna vantrausts heldur en allir aðrir ráðherrar, að forsætisráðherra undanskildum. Þá mældust ráðherrar Sjálfstæðisflokksins með meira vantraust en ráðherrar annarra flokka.