Brattur Christian Eriksen er með háleit markmið á nýju ári.
Brattur Christian Eriksen er með háleit markmið á nýju ári. — AFP
Knattspyrnumaðurinn Christian Eriksen segir að hans markmið sé að fara með danska landsliðinu á heimsmeistaramótið í Katar í lok þessa árs en hann er ekki farinn að spila ennþá eftir að hafa farið í hjartastopp í júní á síðasta ári Fyrsta viðtalið við...

Knattspyrnumaðurinn Christian Eriksen segir að hans markmið sé að fara með danska landsliðinu á heimsmeistaramótið í Katar í lok þessa árs en hann er ekki farinn að spila ennþá eftir að hafa farið í hjartastopp í júní á síðasta ári Fyrsta viðtalið við Eriksen eftir atvikið verður birt hjá Danmarks Radio á morgun.

„Mitt takmark er að fara á HM í Katar. Það hefur verið efst í mínum huga allan tímann. Hvort ég verð valinn í liðið er allt annað mál eða hvort ég næ að spila aftur.“