Helgi Bjarnason Unnur Freyja Víðisdóttir Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) segir ljóst að samfélagið gangi ekki ef tugir þúsunda þríbólusettra einstaklinga verði innilokaðir í sóttkví. Finna verði leið til að láta hagkerfið ganga.

Helgi Bjarnason

Unnur Freyja Víðisdóttir

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) segir ljóst að samfélagið gangi ekki ef tugir þúsunda þríbólusettra einstaklinga verði innilokaðir í sóttkví. Finna verði leið til að láta hagkerfið ganga. Nefnir hann það sem hugmynd að þeir sem eru fullbólusettir og með örvunarskammt fari í smitgát frekar en sóttkví.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, segir að sóttvarnaaðgerðirnar snerti flestar fjölskyldur, fyrirtæki og stofnanir. „Samfélagið stendur nú frammi fyrir þeirri áskorun að halda nauðsynlegri kjarnastarfsemi gangandi,“ segir Halldór og bætir því við að víða í atvinnulífinu sé erfitt að tryggja lágmarksmönnun. „Samfélagið og hagkerfið þola ekki að starfsemi grunninnviða í atvinnulífinu stöðvist, jafnvel þótt það sé tímabundið,“ segir Halldór.

Ýmis starfsemi hefur staðið tæpt vegna manneklu. Til að halda mikilvægri starfsemi gangandi hefur verið sótt um að hluti starfsmanna sé í svokallaðri vinnusóttkví, fái undanþágu til að fara til og frá vinnu, þó með miklum takmörkunum. Tekur Halldór fram að enginn starfsmaður í sóttkví sé neyddur til vinnu.

Spurður um lausn á vandanum segir Halldór Benjamín að vel megi líta til nágrannalandanna þar sem sóttkví sé beitt með vægari hætti en hér á landi. „Til dæmis hlýtur að koma til álita að endurskoða hratt og örugglega reglur um beitingu sóttkvíar, þannig að þeir sem eru fullbólusettir og með örvunarskammt fari í smitgát frekar en sóttkví. Sú breyting myndi skipta sköpum.“

Búast við að fleiri fari í sóttkví

Skólastarf hófst að nýju í gær eftir jólafrí. Fjöldi barna og starfsmanna í skólum landsins er nú þegar ýmist í sóttkví eða í einangrun vegna kórónuveirunnar og viðbúið að fjölgi í þeim hópi þegar fram líða stundir, að því er Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, og Jón Viðar Matthíasson, framkvæmdastjóri almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins, greina frá í samtali við Morgunblaðið í dag.

„Gærdagurinn var fyrsti skóladagurinn svo það er nóg eftir,“ segir Helgi, en að sögn hans voru allt að 12,5% forföll meðal starfsmanna í grunnskólum borgarinnar í gær, og á leikskólum voru forföllin á bilinu 0-40%. 4