Landsliðsmaður Tryggvi Snær Hlinason skilaði sínu í gær.
Landsliðsmaður Tryggvi Snær Hlinason skilaði sínu í gær. — Ljósmynd/FIBA
Zaragoza fékk slæman skell í Malaga í gærkvöldi þegar liðið heimsótti Unicaja í spænsku ACB-deildinni í körfuknattleik. Unicaja vann 112:72 en liðin eru í 11. og 12. sæti í deildinni.

Zaragoza fékk slæman skell í Malaga í gærkvöldi þegar liðið heimsótti Unicaja í spænsku ACB-deildinni í körfuknattleik.

Unicaja vann 112:72 en liðin eru í 11. og 12. sæti í deildinni. Möguleikar Zaragoza á því að komast í átta liða úrslitakeppnina á Spáni fara minnkandi en eru ekki úr sögunni enda nóg eftir af mótinu.

Miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason lék í 18 mínútur og skoraði átta stig, tók fimm fráköst og varði eitt skot. Meðaltal Tryggva í vetur er sjö stig, fimm fráköst og tvö varin skot.