Vísir hf. Sjórinn flæddi inn í frystigeymsluna og er ljóst að hluti af afurðunum varð fyrir skemmdum. Tjónið verður metið í næstu viku.
Vísir hf. Sjórinn flæddi inn í frystigeymsluna og er ljóst að hluti af afurðunum varð fyrir skemmdum. Tjónið verður metið í næstu viku.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ljóst er að tugmilljóna króna tjón varð á afurðum hjá Vísi hf. í Grindavík í flóðinu í fyrradag, að sögn Péturs H. Pálssonar framkvæmdastjóra. Ástand afurðanna verður metið nákvæmlega í næstu viku.

Guðni Einarsson

gudni@mbl.is

Ljóst er að tugmilljóna króna tjón varð á afurðum hjá Vísi hf. í Grindavík í flóðinu í fyrradag, að sögn Péturs H. Pálssonar framkvæmdastjóra. Ástand afurðanna verður metið nákvæmlega í næstu viku.

„Frystigeymsla, fiskvinnsluvélar og annar búnaður og húsin sluppu, fyrir utan einhverjar innréttingar. Það virðast ekki hafa orðið skemmdir á gólfi frystisins eða vatn hafa farið í það. Rafmagninu var slegið út og rafmagnstöflur og spennistöðvar skemmdust ekki. Fiskvinnsluvélarnar standa líka hátt og sluppu en það þurfti að þrífa þetta allt,“ sagði Pétur.

Áætlað er að skoða þurfi ástand um þriðjungs afurðanna sem voru í frystinum og lenti í flóðinu. Því voru um 50-70 tonn af fullunninni vöru tekin frá til frekari skoðunar. Meirihluti afurðanna í frystinum var óskemmdur og strax fluttur í aðra frystigeymslu.

Vinnsla lá niðri hjá Vísi hf. í fyrradag. Unnið var að því fram á rauða nótt að hreinsa til eftir flóðið, yfirfara búnað og gera allt klárt. Hægt var að hefja vinnslu aftur með fullum afköstum í gærmorgun.

„Flóðið var meira og sneggra en við áttum von á,“ sagði Pétur. „Við ætlum að funda með bæjarstjórn og hafnaryfirvöldum og fara yfir það sem gerðist og hvers vegna.“

Húsatóftavöllur skemmdist

„Þetta lítur ekki sérstaklega vel út,“ sagði Helgi Dan Steinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur, um ástandið á Húsatóftavelli eftir flóðið. Sjór gekk langt inn á völlinn og bar með sér stórt grjót, þang og möl. Mikið vatn var enn á vellinum í gærmorgun.

Helgi sagði að sjór hefði líka ruðst inn á völlinn í febrúar 2020 í aftakaveðri. Hann taldi fljótt á litið að ástandið væri ekki jafnt slæmt nú og þá. Mikið hreinsunarstarf bíður.

Helgi sagði að sjóvarnargarður sem liggur meðfram strandlengjunni hefði rofnaði talsvert á undanförnum árum, m.a. á köflum framan við Húsatóftavöll. Þar átti sjórinn greiðan aðgang að vellinum. „Ég sá 8-10 metra háar öldur ganga langt upp á land. Aldan lenti á vegi sem er landmegin við sjóvarnargarðinn og hreinlega sprengdi hann upp,“ sagði Helgi. „Það er forgangsmál að gera við varnargarðinn því við getum búist við svona flóðum, jafnvel á hverju ári eins og veðrið er orðið. Við vonum að garðurinn verði lagaður sem fyrst.“

Ætla að styrkja varnargarðana

„Sjóvarnargarðarnir eru samstarfsverkefni bæjarins og Vegagerðarinnar. Hún stendur straum af kostnaðinum að langmestu leyti,“ sagði Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík. Hann sagði að farið yrði yfir skemmdir á næstu dögum og lögð á ráðin um viðgerðir á görðunum.

Gerðar hafa verið verkáætlanir um styrkingu varnargarðanna, bæði framan við kaupstaðinn og beggja vegna við, þar á meðal við golfvöllinn. Sjóvarnargarðurinn nær alla leið austur að Festarfjalli. Fannar sagði að styrkja þyrfti garðinn og laga á köflum. Hann sagði lágan loftþrýsting, háa sjávarstöðu og áhlaðanda í fyrradag hafa valdið meira álagi en elstu menn muna. Ölduhæðin hefði verið ofboðsleg og gríðarlegt afl í sjónum.

„Við reynum að hafa sjóvarnirnar traustastar þar sem mannvirkin eru, bærinn og höfnin,“ sagði Fannar. „Við reynum líka að styrkja ströndina annars staðar vegna landbrots sem er meðal annars framan við golfvöllinn.“