Njarðvík Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur bjó lengi í Þorlákshöfn, en gaf heimamönnum engan afslátt í Þorlákshöfn í gær.
Njarðvík Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur bjó lengi í Þorlákshöfn, en gaf heimamönnum engan afslátt í Þorlákshöfn í gær. — Ljósmynd/Óttar Geirsson
Bikarmeistarar Njarðvíkur eru komnir upp í annað sæti Subway-deildar karla í körfubolta eftir 109:92-útisigur á Íslandsmeisturum Þórs frá Þorlákshöfn. Bæði lið eru með 16 stig, en Njarðvík hefur unnið báða leiki liðanna í vetur.

Þórsarar byrjuðu betur og voru yfir fyrstu mínúturnar en Daninn Daniel Mortensen byrjaði mjög vel. Njarðvíkingar sóttu í sig veðrið eftir því sem leið á fyrsta leikhlutann og Nicolas Richotti var sjóðheitur. Staðan eftir leikhlutann var 25:22, Njarðvík í vil. Annar leikhlutinn var mjög jafn en Njarðvík var skrefinu á undan stærstan hluta leikhlutans.

Gestirnir úr Njarðvík tóku síðan öll völd á vellinum í seinni hálfleik og lögðu grunninn að sigrinum með góðum þriðja leikhluta sem liðið vann 28:21.

Áðurnefndur Richotti var stigahæstur hjá Njarðvík með 28 stig og Derick Basile gerði 24, tók 8 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Hjá Þór var Glynn Watson með 33 stig og Daniel Mortensen 24. johanningi@mbl.is