Bandaríski leikarinn Chris Noth, sem fór með hlutverk hins svonefnda Mr. Big í þáttunum Sex and the City , sem á íslensku hétu Beðmál í borginni , verður ekki með í lokaþætti And Just Like That ...
Bandaríski leikarinn Chris Noth, sem fór með hlutverk hins svonefnda Mr. Big í þáttunum
Sex and the City
, sem á íslensku hétu
Beðmál í borginni
, verður ekki með í lokaþætti
And Just Like That
..., þáttaraðar sem sýnd er þessa dagana á HBO Max og er framhald þáttanna og kvikmyndanna um beðmálin í borginni. Noth hefur verið sakaður um nauðgun af tveimur konum og greinir vefurinn
Looper
frá því að atriði með honum hafi verið klippt út úr þættinum sem sýndur verður í næstu viku. Noth heldur fram sakleysi sínu.