Aston Villa Philippe Coutinho kemur í láni frá Barcelona.
Aston Villa Philippe Coutinho kemur í láni frá Barcelona. — AFP
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Philippe Coutinho kom í gær til Aston Villa sem lánsmaður frá Barcelona og snýr aftur í ensku úrvalsdeildina eftir fjögurra ára fjarveru.
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Philippe Coutinho kom í gær til Aston Villa sem lánsmaður frá Barcelona og snýr aftur í ensku úrvalsdeildina eftir fjögurra ára fjarveru. Coutinho, sem er 29 ára gamall og hefur leikið 63 landsleiki fyrir Brasilíu, lék með Liverpool 2013-2018, í tvö ár við hlið Stevens Gerrards, núverandi knattspyrnustjóra Aston Villa, en var seldur fyrir 105 milljónir punda. Hann hefur aldrei náð sér fyllilega á strik hjá Barcelona og var í láni hjá Bayern München tímabilið 2019-20.