Embætti umboðsmanns Alþingis var önnum kafið á nýliðnu ári en þá bárust umboðsmanni alls 570 kvartanir til umfjöllunar. Það er metfjöldi kvartana og liðlega 5% fjölgun frá næsta metári þar á undan sem var árið 2020 þegar embættinu bárust 540 kvartanir.

Embætti umboðsmanns Alþingis var önnum kafið á nýliðnu ári en þá bárust umboðsmanni alls 570 kvartanir til umfjöllunar. Það er metfjöldi kvartana og liðlega 5% fjölgun frá næsta metári þar á undan sem var árið 2020 þegar embættinu bárust 540 kvartanir.

Frá þessu er greint á vef umboðsmanns Alþingis þar sem fjallað er um seinasta starfsár. Voru nær 600 mál afgreidd hjá embættinu á liðnu ári. „Að meðaltali bárust umboðsmanni tæplega 50 kvartanir í mánuði, langflestar í maí þegar þær voru 84 og fæstar í júlí, 31. Eftir að kvörtunum tók að fækka frá árinu 2012, þegar þær voru 536, urðu þær fæstar 384 fyrir fjórum árum. Stórt stökk upp á við kom svo á milli 2019 og 2020 þegar þeim fjölgaði um hartnær þriðjung milli ára. Undanfarin tvö ár bárust alls 1.110 kvartanir eða 555 að meðaltali samanborið við að næstu fimm ár þar á undan voru þær að meðaltali 408 á ári,“ segir í umfjöllun um kvartanirnar.

Skilaði áliti í 59 málum

Alls skilaði umboðsmaður áliti í 59 málum á seinasta ári og er þar hlutfallslega um tvöföldun að ræða frá árinu á undan. „Það helgast einkum af því að frá 1. maí sl. eru álit ekki aðeins með tilmælum, þar sem talið er að stjórnvöld hafi brotið reglur og rétta beri hlut borgarans, heldur líka án. Álit með tilmælum voru 34 og án tilmæla 25. Líkt og álit með tilmælum fela hin einnig í sér niðurstöðu sem hefur almenna þýðingu og leiðbeiningargildi.“

Á seinasta ári fór umboðsmaður í fjórar heimsóknir á grundvelli svonefnds OPCAT-eftirlits; á öryggisdeild Litla-Hrauns, í fangageymslur lögreglunnar á Suðurnesjum, í eftirfylgniheimsókn á Klepp og á bráðageðdeildina við Hringbraut. omfr@mbl.is