Sjö heimilismenn á hjúkrunarheimilinu Seltjörn greindust með Covid-19 í gær. Heimilismennirnir búa allir á sömu deild, en alls búa tíu á deildinni. Þetta staðfesti Kristján Sigurðsson, forstjóri Sunnuhlíðar, í samtali við mbl.is í gærkvöldi.

Lokað verður fyrir heimsóknir á deildina næstu daga og munu heimilismenn dvelja í herbergjum sínum á meðan þeir sæta einangrun.

„Þetta verður áskorun fyrir alla en við munum gera okkar besta til að ykkar fólki megi líða sem allra best,“ segir Svanlaug Guðnadóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Seltjörn, í pósti til aðstandenda.