Alls greindust 1.175 með kórónuveiruna innanlands á fimmtudag. Á landamærum greindust 102 samtals. Þetta kemur fram á Covid.is. Í gær var 10.161 í einangrun, sem var fjölgun um 693 á milli daga. 8.084 voru í sóttkví og eru það 206 fleiri en daginn áður.

Alls greindust 1.175 með kórónuveiruna innanlands á fimmtudag. Á landamærum greindust 102 samtals. Þetta kemur fram á Covid.is.

Í gær var 10.161 í einangrun, sem var fjölgun um 693 á milli daga. 8.084 voru í sóttkví og eru það 206 fleiri en daginn áður. Samanlagt voru því í gær 18.245 annaðhvort í einangrun eða sóttkví hér á landi. Þá var í gær greint frá því á vef Landspítala að 37 séu á sjúkrahúsi með Covid-19, þar af átta á gjörgæslu. Ekki voru gefnar upplýsingar um af hvaða afbrigði sjúklingar voru smitaðir.