Klassískt Kunnuglegt mótíf í ljósmynd hinnar finnsku Elinu Brotherus úr syrpu hennar Sebaldiana frá 2019.
Klassískt Kunnuglegt mótíf í ljósmynd hinnar finnsku Elinu Brotherus úr syrpu hennar Sebaldiana frá 2019. — Ljósmynd/Elina Brotherus
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Fjórir íslenskir myndlistarmenn taka þátt í alþjóðlegri sýningu í Kaupmannahöfn sem hefst á morgun, laugardag, í Fotografisk Center.

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Fjórir íslenskir myndlistarmenn taka þátt í alþjóðlegri sýningu í Kaupmannahöfn sem hefst á morgun, laugardag, í Fotografisk Center. Sýningin ber titilinn Snefnug og andre overraskelser eða Snjóflygsur og önnur undur og má á henni sjá verk 16 listamanna frá fjórum löndum. Þeir íslensku eru Einar Falur Ingólfsson, Hallgerður Hallgrímsdóttir, Katrín Elvarsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir og er sýningarstjórinn einnig Íslendingur, Sigrún Alba Sigurðardóttir.

Í tilkynningu segir að á sýningunni sé unnið með ljósmyndina sem frásagnaraðferð og sjónum beint að listamönnum sem í verkum sínum fangi tilveruna, þá ekki síst ýmis undur náttúrunnar, á ljóðrænan og næman hátt. „Snjókorn, gróður, lifandi og dauðir fuglar og samspil manns og náttúru eru þar í forgrunni. Snjóflygsan eða snjókornið birtist hér sem táknmynd þess að við höfum ekki stjórn á náttúrunni,“ segir m.a. í tilkynningu en auk ljósmynda sýnir Tinna Gunnarsdóttir þrívíð verk og hljóðlistamaðurinn Jacob Kirkegård er með verk sem höfðar til allra skynfæra. Margir af fremstu ljósmyndurum Norðurlanda eiga verk á sýningunni, þ.ám. Elina Brotherus.

Fékk frjálsar hendur

Sigrún er spurð að því hvernig þessi sýning hafi komið til. „Ég hef verið að vinna dálítið í Danmörku og þekki ágætlega til í myndlistarheiminum hér. Mér var boðið fyrir um ári að setja upp sýningu í Fotografisk Center,“ svarar Sigrún og segir að safnstjórinn, Signe Kahr Sørensen, hafi haft samband við hana eftir að hafa lesið grein eftir hana um norræna samtímaljósmyndun sem birt var í tímaritinu Art . „Hún gaf mér alveg frjálsar hendur og að hennar frumkvæði komu Landskrona Foto og Northern Photographic Center í Oulun inn í samstarfið þannig að sýningin fer þangað eftir að hafa verið hér í Kaupmannahöfn. En ég bjó sem sagt til konseptið og valdi listamennina og verkin á sýninguna,“ segir Sigrún.

Hægði á öllu

Sigrún er beðin um að segja betur frá konseptinu sem nún nefndi. „Það er kannski best að segja frá því þannig að ég bjó hérna úti í Kaupmannahöfn síðasta vetur og þá var náttúrulega kóvíd og allt það og allt lokað. Ég fór oft í göngutúra og tók eftir því að það voru svo margir úti við að ganga, úti í skógi var alltaf fullt af fólki og einhvern veginn hægði á öllu og fólk fór að taka betur eftir umhverfi sínu. Á sama tíma var ég að lesa bók eftir mann sem heitir Hartmut Rosa og er að tala um þetta „resonance“-hugtak, hvernig maður hlustar á umhverfið og bregst við og samspil manns og náttúru,“ útskýrir Sigrún.

Að opna betur augun og lifa sig inn í umhverfið

Sigrún segist hafa farið að skoða þetta í verkum norrænna listamanna og grunnhugmynd eða konsept sýningarinnar snúist að miklu leyti um að vekja athygli á hinu smáa og hvetja áhorfendur til að vera vakandi fyrir hinu óvænta sem eigi sér t.d. stað í hversdagslegum göngutúr. „Þannig að það eru margar myndir sem tengjast náttúrunni á sýningunni og oft einhver smáatriði þannig að þetta er kannski hvatning til fólks um að opna augun betur og lifa sig inn í umhverfið, ekki bara skoða það heldur verða hluti af því,“ segir Sigrún. Henni finnist mikilvægt sem sýningarstjóri að búa til frásögn, að verkin tali vel saman og segi sögu. „Og þetta er svolítil vetrarsýning, ég myndi ekki vilja opna hana að sumri til. Það er dálítið mikill snjór og myrkur yfir,“ segir hún.

Fotografisk Center er að Stalgade 16 í Kaupmannahöfn og fyrir þá sem staddir verða í borginni á morgun er vakin athygli á listamannaspjalli sem fram fer þann dag kl. 14.

Heimasíða Fotografisk Center: www.fotografiskcenter.dk