Hetja Diogo Jota fagnar öðru marki sínu á 79. mínútu í gær.
Hetja Diogo Jota fagnar öðru marki sínu á 79. mínútu í gær. — AFP
Diogo Jota skoraði bæði mörk Liverpool þegar liðið vann 2:0-sigur gegn Arsenal í síðari leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins í knattspyrnu á Emirates-vellinum í London í gær.
Diogo Jota skoraði bæði mörk Liverpool þegar liðið vann 2:0-sigur gegn Arsenal í síðari leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins í knattspyrnu á Emirates-vellinum í London í gær. Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli á Anfield, 0:0, og Liverpool vann því einvígið samanlagt 2:0. Liverpool mætir Chelsea í úrslitaleik á Wembley 27. febrúar en Liverpool hefur átta sinnum fagnað sigri í keppninni, síðast árið 2012, á meðan Chelsea hefur unnið hana fimm sinnum, síðast árið 2015.