Samstarf Jóhanna og Hrönn.
Samstarf Jóhanna og Hrönn.
Myndlistarkonurnar Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Hrönn Björnsdóttir opnuðu í gær sýninguna Upphaf í Gallerí Gróttu á Seltjarnarnesi. Öll verkin eru abstrakt og expressjónísk málverk unnin með blandaðri tækni í fyrra og í byrjun þessa árs.

„Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Hvert andartak er nýtt upphaf, opið tækifæri til að eiga samtal við tímann og skapa. Allt og ekkert er fullkomið í senn, upphaf og spuni í trausti flæðis,“ segir í tilkynningu um sýninguna en Upphaf er fyrsta samsýning Jóhönnu og Hrannar sem hafa átt farsælt samstarf í Anarkíu listasal í Kópavogi sem síðar varð Artgallerí Gátt sem þær ráku ásamt fleiri listamönnum um árabil. Báðar eiga að baki nokkrar einkasýningar auk fjölda samsýninga hér á landi og erlendis.