Reykjavíkurborg var ekki heimilt að gera að skilyrði við úthlutun almenns félagslegs leiguhúsnæðis í borginni og með vísan til húsaleigulaga að leigjendur tækju reglulega á móti starfsmanni borgarinnar á heimili sínu gegn þeirra vilja.

Reykjavíkurborg var ekki heimilt að gera að skilyrði við úthlutun almenns félagslegs leiguhúsnæðis í borginni og með vísan til húsaleigulaga að leigjendur tækju reglulega á móti starfsmanni borgarinnar á heimili sínu gegn þeirra vilja. Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns.

Leigjendurnir sem um ræðir gerðu athugasemir við að gert hefði verið að skilyrði við úthlutun húsnæðisins að þeir skyldu taka á móti starfsmanni sveitarfélagsins á heimili sínu tvisvar sinnum í mánuði með svonefndri eftirfylgd við leigutakann. Leigjendurnir kærðu ákvörðun borgarinnar til úrskurðarnefndar velferðarmála sem staðfesti ákvörðun borgarinnar. Sendu þeir þá kvörtun til umboðsmanns sem kemst að þeirri niðurstöðu að ákvæði húsaleigulaga, sem byggt hefði verið á, hefðu ekki að geyma heimild til þess að gera úthlutun húsnæðis háða slíku skilyrði um að leigjendunum bæri að þiggja eftirfylgd borgarinnar.

Úrskurðarnefnd leysti ekki úr málinu í samræmi við lög

„Íþyngjandi ráðstafanir stjórnvalda yrðu að eiga sér stoð í lögum. Eftir því sem ákvörðun teldist meira íþyngjandi fyrir borgarana, ekki síst ef hún fæli í sér inngrip í stjórnarskrárvarin réttindi, því meiri kröfur væru gerðar að þessu leyti,“ segir í umfjöllun um málið á vefsíðu umboðsmanns. Auk þess hafi að mati umboðsmanns úrskurðarnefnd velferðarmála ekki leyst úr málinu í samræmi við lög og mæltist umboðsmaður til að nefndin tæki það aftur til meðferðar ef eftir því yrði leitað.

omfr@mbl.is