Björg Fenger
Björg Fenger
Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar og formaður íþrótta- og tómstundaráðs, býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ hinn 5. mars nk.

Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar og formaður íþrótta- og tómstundaráðs, býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ hinn 5. mars nk. Björg hefur verið bæjarfulltrúi undanfarin fjögur ár og var þar áður varabæjarfulltrúi. Hún hefur einnig setið í bæjarráði, verið stjórnarformaður Strætó bs. og auk þess setið í ýmsum ráðum og nefndum á vegum bæjarins.

Björg segist hafa brennandi áhuga og metnað til að vinna að því að Garðabær verði áfram eftirsóknarvert bæjarfélag í fremstu röð.