Rosenborg Selma Sól Magnúsdóttir fer í eitt besta lið Noregs.
Rosenborg Selma Sól Magnúsdóttir fer í eitt besta lið Noregs. — Morgunblaðið/Unnur Karen
Selma Sól Magnúsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu úr Breiðabliki, samdi í gær við norska félagið Rosenborg frá Þrándheimi til tveggja ára.
Selma Sól Magnúsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu úr Breiðabliki, samdi í gær við norska félagið Rosenborg frá Þrándheimi til tveggja ára. Selma er 23 ára gömul, leikur sem miðjumaður og hefur ávallt spilað með Blikum, utan eins tímabils þegar hún var í láni hjá Fylki. Selma á 16 A-landsleiki að baki. Rosenborg hafnaði í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðasta ári eftir einvígi við Sandviken um meistaratitilinn en með því tryggði liðið sér keppnisrétt í Meistaradeildinni á næsta tímabili.