Olíukatlar Orkubú Vestfjarða hyggst stóla á sex olíukatla til húshitunar á komandi mánuðum.
Olíukatlar Orkubú Vestfjarða hyggst stóla á sex olíukatla til húshitunar á komandi mánuðum.
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Orkubú Vestfjarða og RARIK búa sig undir að brenna milljónum lítra af olíu á komandi mánuðum til þess að tryggja húshitun á Vestfjörðum og á Seyðisfirði.

Stefán E. Stefánsson

ses@mbl.is

Orkubú Vestfjarða og RARIK búa sig undir að brenna milljónum lítra af olíu á komandi mánuðum til þess að tryggja húshitun á Vestfjörðum og á Seyðisfirði. Forstjóri Orkubúsins telur raforkuskort leiða tæplega 500 milljóna króna kostnað yfir fyrirtækið á komandi þremur mánuðum og að honum verði óhjákvæmilega velt yfir á neytendur á Vestfjörðum til lengri tíma litið. Höggið jafngildi 70 þúsund króna reikningi á hvert mannsbarn á svæðinu.

Orkuskerðingin sem fyrirtækin standa frammi fyrir kemur í kjölfar þess að Landsvirkjun hafði einnig tilkynnt öllum fiskimjölsverksmiðjum landsins að þær myndu ekki fá keypta skerðanlega orku úr kerfum fyrirtækisins. Hafa forsvarsmenn fyrirtækjanna áætlað að það leiði til þess að 20 milljónum lítra af olíu verði brennt við bræðsluna á yfirstandandi vertíð.

RARIK verður ekki aðeins fyrir höggi vegna olíubrennslu við upphitun Seyðisfjarðarkaupstaðar heldur einnig vegna þess að fyrirtækið hefur haft tekjur af flutningi raforku til bræðslanna á Austurlandi. Metur fyrirtækið tjón sitt í heildina á 300 milljónir, miðað við að loðnuvertíðin verði jafn stór og væntingar hafa verið um.

Gögn sem Landsvirkjun hefur veitt Morgunblaðinu aðgang að sýna að skammtímamarkaður með raforku hefur tekið miklum breytingum á örfáum vikum. Á 90 dögum hafa svokallaðar mánaðarblokkir á þeim markaði hækkað um 46%. Í svari fyrirtækisins við fyrirspurn blaðsins segir að vatnsbúskapur hafi ekki verið lakari um árabil vegna þurrka og á sama tíma sé eftirspurn eftir raforku mikil. „Raforkukerfið er fulllestað um þessar mundir og Landsvirkjun hefur ekki getað annað allri eftirspurn frá núverandi viðskiptavinum.“

Segir orkuskort ekki yfirvofandi

Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að orkumálastjóri hefði sent bréf á raforkuframleiðendur og kallað, með 48 klukkustunda fyrirvara, eftir upplýsingum um mögulega aukningu í orkuframleiðslu frá og með 1. febrúar næstkomandi. Í svari Höllu Hrundar Logadóttur orkumálastjóra við fyrirspurn blaðsins í gær segir að bréf hennar hafi verið rangtúlkað. Það hafi ekki falið í sér yfirlýsingu um að orkuskortur væri yfirvofandi á Íslandi.

Líkt og umfjöllun blaðsins leiðir í ljós stefnir allt í að allt að 25 milljónum lítra af olíu verði brennt á komandi vikum og mánuðum hér á landi vegna þess að fyrirtæki og heimili fá ekki aðgang að raforku til húshitunar og mjölframleiðslu.