Plan C. S-Allir
Norður | |
♠643 | |
♥G108 | |
♦DG1097 | |
♣87 |
Vestur | Austur |
♠K9 | ♠D1085 |
♥9752 | ♥643 |
♦Á43 | ♦82 |
♣G642 | ♣D1053 |
Suður | |
♠ÁG72 | |
♥ÁKD | |
♦K65 | |
♣ÁK9 |
Suður spilar 3G.
„Er maður ekki alltaf að kombínera sénsa? Er það ekki einmitt kúnstin í lífinu og þess þá heldur við spilaborðið – að hafa plan B? Ég held það.“
Óskar ugla dettur annað slagið í rómantískar hugleiðingar um lífið og tilveruna. Það fer í taugarnar á mörgæsinni: „Hættu þessu væli og komdu með dæmi.“ Og það stóð ekki á því: 3G með hjartaútspili.
„Þetta er plan C.“ Gölturinn hafði brugðið sér inn í eldhús að ná í kleinur og heyrt samtal fuglanna úr fjarlægð. Nú var hann kominn aftur að borðinu og gat ekki stillt sig: „Plan A er tígulás annar eða blankur. Neibb. Plan B er spaðinn þrjú-þrjú. Ekki heldur. Plan C er spaðaháspil annað í vestur. Jebb.“
Allt rétt og Óskar fyllti út smáatriðin: Lítill spaði í öðrum slag, svo tígulkóngur og spaðaás, tígull á blindan og spaði að gosa.