Bayern Cecilía Rán Rúnarsdóttir er komin í eitt besta lið Evrópu.
Bayern Cecilía Rán Rúnarsdóttir er komin í eitt besta lið Evrópu. — Ljósmynd/Bayern
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, átján ára landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, er komin til liðs við þýsku meistarana Bayern München sem fengu hana í gær lánaða frá Everton til 30. júní. Aðalmarkvörður Bayern, Laura Benkarth, er úr leik vegna meiðsla.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, átján ára landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, er komin til liðs við þýsku meistarana Bayern München sem fengu hana í gær lánaða frá Everton til 30. júní. Aðalmarkvörður Bayern, Laura Benkarth, er úr leik vegna meiðsla. Cecilía hefur ekki fengið keppnisleyfi með Everton þar sem hana skortir atvinnuleyfi á Bretlandseyjum en hún var lánuð þaðan til Örebro í Svíþjóð á síðasta ári. Með Bayern leika einnig Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.