Þoka Ein af ljósmyndum Marinós á sýningu hans Straumnes.
Þoka Ein af ljósmyndum Marinós á sýningu hans Straumnes.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Tvær nýjar ljósmyndasýningar verða opnaðar í Þjóðminjasafni Íslands í dag frá kl. 10 til 17. Annars vegar er það sýning Marinós Thorlacius, Straumnes, í Myndasal og hins vegar sýning Vassilis Triantis, Þar sem rósir spruttu í snjó , á Veggnum.

Tvær nýjar ljósmyndasýningar verða opnaðar í Þjóðminjasafni Íslands í dag frá kl. 10 til 17. Annars vegar er það sýning Marinós Thorlacius, Straumnes, í Myndasal og hins vegar sýning Vassilis Triantis, Þar sem rósir spruttu í snjó , á Veggnum.

Um sýningu Marinós segir í tilkynningu: „Straumnesfjall stendur milli Aðalvíkur í suðri og Rekavíkur í norðri og er nú hluti af friðlandinu á Hornströndum. Þar byggði og starfrækti bandaríski herinn ratsjárstöð á tímum kalda stríðsins. Stöðin starfaði aðeins í tæp þrjú ár, frá árinu 1958 til 1961. Hreinsun á fjallinu og nærliggjandi svæðum var framkvæmd árið 1991 í samstarfi hersins og Íslendinga þó enn megi sjá greinileg ummerki um þessa starfsemi á fjallinu.“

Marínó ljósmyndaði svæðið árin 2015 og 2019 og deilir nú sýn sinni á það sem enn stendur af ratsjárstöðinni við ysta haf. Hann sýndi ljósmyndir sínar fyrst árið 2004 og hefur upp frá því starfað við ljósmyndum og vinnur jafnt að listrænum verkefnum og við auglýsingaljósmyndun. Hann á í nánu samstarfi við listamenn og hönnuði, mótar með þeim myndheim verkefnanna og myndir hans hafa birst í innlendum og erlendum tímaritum og á sýningum.

Þar sem rósir spruttu í snjó , sýning Vassilis Triantis, er samsett úr ljósmyndum hans sjálfs og myndum úr fjölskyldualbúmi tengdaforeldra hans, Ástu og Gústa, sem lengi voru rósabændur í Laugarási í Biskupstungum og í tilkynningu segir að sýningin sé virðingarvottur við líf og starf þeirra hjóna og endurspegli minningar um rósir sem spruttu í snjó. Vassilis Triantis fæddist á Grikklandi og býr og starfar í Hollandi. Hann er menntaður líffræðingur og sinnir rannsóknum í líffræði og ljósmyndun jöfnum höndum. Hann hefur tekið þátt í sýningum víða og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín.