Hugsandi menn. V-AV
Norður | |
♠2 | |
♥873 | |
♦ÁG2 | |
♣Á65432 |
Vestur | Austur |
♠KG9853 | ♠764 |
♥ÁK | ♥65 |
♦1087 | ♦D543 |
♣G10 | ♣KD98 |
Suður | |
♠ÁD10 | |
♥DG10942 | |
♦K96 | |
♣7 |
Suður spilar 4♥.
„Þetta er hárrétt hjá þér, Óskar. Það er eðli hins hugsandi manns að vera tvöfaldur í roðinu – að kombínera sénsa, eins og þú segir. En örfáir menn eru svo langt komnir að geta búið til nýja sénsa.“
Það koma fuglunum ekki á óvart að Gölturinn er í hópi hinna örfáu. Hann rifjaði upp gamalt afrek til skýringar – 4♥ eftir opnun vesturs á 1♠. Vestur tók tvo slagi á ♥ÁK og skipti yfir í laufgosa.
Slagirnir eru níu með einni spaðastungu og möguleikarnir á tíunda slagnum virðast liggja annars vegar í laufinu 3-3 eða svíningu á tígulgosa. „Hinn hugsandi maður“ sameinar möguleikana með því að trompa strax lauf, trompa spaða og aftur lauf. Ekki fellur laufið og þá verður að svína í tígli. Tapað spil. Gölturinn trompaði lauf, eins og vera ber, en spilaði síðan spaðadrottningu að heiman frá ♠ÁD10! Og gaf þannig ♦9 hlutverk í lífinu.