Kristen Bell fer með aðalhlutverkið í nýju þáttunum á Netflix.
Kristen Bell fer með aðalhlutverkið í nýju þáttunum á Netflix. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
The Woman in the House Across the Street from the Girl in the Window nefnast þættir sem koma inn á Netflix næsta föstudag. Svo sem nafnið gefur til kynna er um að ræða glæpsamlega satíru. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

Anna situr ein við gluggann í huggulega húsinu sínu og fylgist með lífinu líða hjá – án hennar. Hún er einmana og drekkur aðeins of mikið rauðvín og fær sér aðeins of mikið af pillum með því enda þótt hún viti að þetta tvennt fer ekki vel saman. Skyndilega færist fjör í leikinn þegar sjóðheitur ekkill, Neil, flytur inn beint á móti, ásamt dóttur sinni. Anna opnar augun og sperrir eyrun sem aldrei fyrr enda fátt annað sem veitir henni fróun en að fylgjast með nágrönnum sínum og athöfnum þeirra. Gamanið kárnar þó fljótt þegar Anna verður vitni að morði á heimili þeirra feðgina. Eða er það svo?

Enginn trúir henni og lögreglan spjaldar Önnu fyrir að leiða sig í ógöngur. Slík hegðun varði við lög. Hún er afskrifuð sem enn ein einmana húsmóðirin með ofskynjanir og almennar grillur. Og alltof mikla móðu á glugga. Sjálf færist Anna sífellt nær bjargbrúninni og veltir fyrir sér hvort hún sé að ganga af göflunum. „Ég er að liðast í sundur eins og spilaborg, sandkastali á háflóði, fúinn stóll eða gamall skrjóður,“ segir hún mæðulega í stiklunni sem finna má á netinu.

Öll þekkjum við ráðgátumyndir á borð við The Girl on the Train, The Woman in the Window og hvað þær nú allar heita. Út af þeim er lagt í nýrri seríu í átta hlutum sem kemur inn á efnisveituna Netflix á föstudaginn kemur. Og nafnið? Haldið ykkur nú fast og dragið andann djúpt: The Woman in the House Across the Street from the Girl in the Window. Það er Konan í húsinu beint á móti stúlkunni í glugganum.

Töggur í þessum höfundum

„Það er töggur í þessum höfundum,“ hugsaði Kristen Bell, sem fer með hlutverk Önnu í þáttunum, þegar hún las handritið.

„Þetta var ólíkt öllu sem ég hafði áður heyrt og ég skellihló,“ segir Bell í viðtali við miðilinn Entertainment Weekly um kynninguna sem hún fékk á verkefninu. Það atriði hverfist um dóttur persónu hennar og á ugglaust eftir að fá ýmsa til að missa hökuna í gólfið. „Þetta var svo langt út fyrir rammann og absúrd að ég vissi um leið að ég yrði að vera með,“ bætir Bell við.

Svo mikla trú hefur Bell á verkefninu að hún framleiðir það líka, ásamt Will Ferrell og fleirum. Leikstjóri er Michael Lehmann.

Enginn hefur reynt að breiða yfir þá staðreynd að The Woman in the House Across the Street from the Girl next Door sé satíra, drekkhlaðin biksvörtum húmor, en aðstandendur segjast þó alls ekki vera að tala niður til mynda af þessu tagi, heldur þvert á móti votta þeim virðingu sína.

„Mér finnst við ekki vera að gera grín að þessum bókum eða myndunum sem gerðar hafa verið eftir þeim. Við erum að hlæja með þessari grein en ekki hlæja að henni,“ segir einn höfunda þáttanna, Rachel Ramras, við Entertainment Weekly.

Þetta hverfðist raunar allt um rétta jafnvægið enda teymið sem að þáttunum stendur allt miklir aðdáendur Woman in the-sagnanna. „Við fiktuðum stanslaust við þetta og teljum okkur hafa komið niður á tón sem er ekki sérlega algengur,“ útskýrir annar höfundanna, Larry Dorf.

Hló innra með sér

Bell þurfti að vera sérstaklega meðvituð um þetta, sem höfuðpersóna þáttanna. Hvergi mátti slá falskan tón.

„Það var mikil áskorun,“ segir hún, „vegna þess að ég þurfti stöðugt að velta fyrir mér: Á ég að grínast hérna? Eða halda andlitinu og hætta á að fara á svig við brandarann? Rachel hélt mér við efnið og ráðlagði mér í grunninn að gera allt eins alvarlega og ég gæti en gleyma samt ekki að hlæja innra með mér. Niðurstaðan er „besti“ vondi leikurinn sem ég hef viljað ná fram á ferlinum. Þetta var þrælgaman.“

Að því sögðu þá vonar Bell samt sem áður að fólki líði óþægilega meðan það horfir á þættina enda erum við þrátt fyrir allt að tala um trylli með öllum sínum lykkjum og snúningum.

„Ef þú ert ekki á kafi í gátunni og getur ekki beðið eftir því hver framdi glæpinn þá gildir einu hversu fyndnir þættirnir eru,“ bætir Ramras við. „Þá stillir þú ábyggilega bara á eitthvað annað eftir fáeina þætti. Höfuðmarkmiðið er að áhorfendur fylgi okkur allt til enda og fáránleikinn eykst bara eftir því sem á líður.“

Þriðji höfundurinn, Hugh Davidson, segir þau hafa lagt ofurkapp á að hafa endalokin verulega óvænt. „Það sem við viljum alls ekki heyra er: Einmitt, ég vissi þetta allan tímann. Þá yrði allt ónýtt fyrir okkur. Þess vegna eyddum við miklum tíma í að finna leið til að koma fólki hressilega á óvart í lokin. Ekkert skipti okkur meira máli.“

Auk Bell leika Tom Riley, Mary Holland, Shelley Hennig, Samsara Yett, Christina Anthony og fleiri í The Woman in the House Across the Street from the Girl in the Window.

Þá er bara að opna vínflöskuna og koma sér makindalega fyrir. En í öllum bænum látið pillurnar vera; þetta fer ekki vel saman. Þið gætuð farið að sjá ofsjónir og upplifa eitthvað allt annað en það sem í raun og veru er að gerast í þáttunum. Sem er, eftir á að hyggja, kannski bara ljómandi vel við hæfi. Alltént, þið finnið út úr þessu!

Tróð á tilfinningum unnusta síns

Kristen Bell er 41 árs gömul bandarísk leikkona. Hún sló fyrst í gegn í sjónvarpsþáttunum Veronica Mars árið 2004, þar sem hún fór með titilhlutverkið. Eftir það komu hlutverk í vinsælum þáttum á borð við Heroes og Gossip Girl.

Stóra tækifærið á hvíta tjaldinu kom í gamanmyndinni Forgetting Sarah Marshall árið 2008, þar sem hún lék hina kaldrifjuðu Söruh Marshall sem tróð kinnroðalaust á tilfinningum fyrrverandi unnusta síns, þangað til hún vildi allt í einu fá hann til baka. Það fýkur bara í mann við að rifja þetta upp. Bell lék einnig í Couples Retreat (2009), When in Rome (2010), You Again (2010), The Boss (2016), Bad Moms (2016), og A Bad Moms Christmas (2017). Þá léði hún Önnu prinsessu rödd sína í Disneyklassíkinni Frozen. Undanfarið hefur hún hlotið lof fyrir leik sinn í þáttunum The Good Place.

Bell er gift leikaranum Dax Shepard og á með honum tvær dætur.