Helga Ingólfsdóttir bæjarfulltrúi býður sig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sem fer fram 3.-5. mars.
Helga Ingólfsdóttir bæjarfulltrúi býður sig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sem fer fram 3.-5. mars.
Helga hefur setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í þrjú kjörtímabil og verið formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs og varaformaður fjölskylduráðs frá árinu 2014.
Helga hefur réttindi sem viðurkenndur bókari og próf í rekstri og viðskiptum á vegum EHI. Hún starfar sem bókari í hlutastarfi og situr í stjórnum VR og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.