Söguleg stríðsmynd frá 2019 með stórgóðum leikurum. Myndin dregur nafn sitt af samnefndri sjóorrustu á milli Bandaríkjanna og Japans í heimsstyrjöldinni síðari sem átti sér stað vestan við Midway-eyju á Kyrrahafi 4.-7.
Söguleg stríðsmynd frá 2019 með stórgóðum leikurum. Myndin dregur nafn sitt af samnefndri sjóorrustu á milli Bandaríkjanna og Japans í heimsstyrjöldinni síðari sem átti sér stað vestan við Midway-eyju á Kyrrahafi 4.-7. júní 1942, sex mánuðum eftir að japanski flugherinn hafði gert árás á og stórlaskað flota Bandaríkjanna í Pearl Harbour við Havaíeyjar. Þetta er sönn saga foringja og hermanna sem með innsæi sínu, kjarki og hugrekki sigruðust á óvini sínum, þrátt fyrir að líkurnar hafi verið þeim í óhag.