Kona nokkur, Alexis Graham, gaf eiginmanni sínum og barnsföður, Andrew, ómetanlega afmælisgjöf á dögunum, gjöf sem merkt var nýfæddri dóttur þeirra.

Kona nokkur, Alexis Graham, gaf eiginmanni sínum og barnsföður, Andrew, ómetanlega afmælisgjöf á dögunum, gjöf sem merkt var nýfæddri dóttur þeirra.

Dóttirin, India, fæddist aðeins nokkrum dögum eftir að faðir Andrews lést og fékk hann því aldrei að hitta nýja barnabarnið sitt. Andrew gat ekki haldið aftur af tárunum þegar hann opnaði afmælisgjöfina en í henni leyndist falleg teikning af föður hans haldandi á Indiu litlu.

Myndband náðist af þessu yndislega augnabliki og deildi Alexis því á TikTok í mánuðinum. Hefur það nú fengið hátt í tvær og hálfa milljón áhorfa.

Myndbandið fallega má sjá á K100.is.