60 ára Aðalsteinn er Hafnfirðingur og ólst upp í Kinnahverfi. Hann er húsasmíðameistari og vinnur núna fyrir Trefjar í Hafnarfirði. Hann er í Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar og var formaður skálanefndar Jöklarannsóknafélagsins í nokkur ár.
60 ára Aðalsteinn er Hafnfirðingur og ólst upp í Kinnahverfi. Hann er húsasmíðameistari og vinnur núna fyrir Trefjar í Hafnarfirði. Hann er í Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar og var formaður skálanefndar Jöklarannsóknafélagsins í nokkur ár. „Áhugamál mín eru ferðamennska, skotveiði og fjölskylda. Ég fer á rjúpu, gæs og önd og keppi í skotfimi.“

Fjölskylda Eiginkona Aðalsteins er Helga Jóhannsdóttir, f. 1963, skrifstofumaður hjá Gáska og Samasem. Dætur þeirra: Auður Ýr, f. 1987, d. 1987, Agnes Ýr, f. 1989, og Íris Ösp, f. 1993. Barnabörnin eru Birgir Hrafn og Bergrós Kara Andrabörn og Agnesar. Foreldrar Aðalsteins eru Svavar Gunnarsson, f. 1939, d. 2020, húsasmíðameistari, og Rannveig Aðalsteinsdóttir, f. 1940, fv. dómritari, búsett í Hafnarfirði.