Á leið Tolli Morthens, Arnar Hauksson og Sebastian Garcia.
Á leið Tolli Morthens, Arnar Hauksson og Sebastian Garcia. — Ljósmynd/Aðsend
Fjallgöngumaðurinn Arnar Hauksson og leiðsögumaður hans, Sebastian Garcia, náðu tindi Aconcagua-fjalls í Argentínu síðdegis í gær að íslenskum tíma. Fjallið Aconcagua er hæsta fjall í heimi utan Asíu.

Fjallgöngumaðurinn Arnar Hauksson og leiðsögumaður hans, Sebastian Garcia, náðu tindi Aconcagua-fjalls í Argentínu síðdegis í gær að íslenskum tíma. Fjallið Aconcagua er hæsta fjall í heimi utan Asíu. Arnar og Sebastian hófu síðustu atlögu sína að tindinum að morgni laugardags og komust þangað klukkan 18.06 að íslenskum tíma í gær.

Þetta var önnur atlaga þeirra en um síðustu helgi var veðurgluggi sem hélst ekki opinn nógu lengi til að klára verkefnið. Þeir þurftu þannig að bíða í heila viku til að takast á við tindinn. Tvennar búðir eru á leiðinni áður en komið er á toppinn. Þeir náðu seinni búðunum um síðustu helgi.

Leiðangursstjórinn heltist úr lestinni á leiðinni á tindinn

Myndlistarmaðurinn Tolli Morthens var leiðangursstjóri og ætlaði með á toppinn en hélt kyrru fyrir í grunnbúðum vegna háfjallaveiki. Hann gerir ráð fyrir að leiðangurinn komi niður í einum rykk frekar en að dvelja í millibúðum á leiðinni. Þeir leggja svo af stað aftur heim í vikunni.

Leiðangurinn var farinn til að vekja athygli á starfsemi Batahúss, sem tók til starfa á síðasta ári, og safna um leið áheitum fyrir starfsemina.

Batahús er einstaklingsmiðað bataúrræði við enda afplánunar þar sem einstaklingum er boðin heimilisaðstaða til allt að tveggja ára. Unnið er með einstaklingum á jafningjagrundvelli út frá hugmyndum um áfallamiðaða nálgun. Tolli og Arnar eru báðir í stjórn Batahúss.