Þorkell Sigurlaugsson
Þorkell Sigurlaugsson
Þorkell Sigurlaugsson hyggst bjóða sig fram í væntanlegu prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Hann sækist eftir öðru til þriðja sæti.

Þorkell Sigurlaugsson hyggst bjóða sig fram í væntanlegu prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Hann sækist eftir öðru til þriðja sæti.

Þorkell hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og háskólastarfi og hefur auk þess verið virkur þátttakandi í málefnastarfi Sjálfstæðisflokksins undanfarin ár sem formaður velferðarnefndar flokksins. Hann leggur sérstaka áherslu á velferðarmál, skipulagsmál, samgöngumál og atvinnumál. Þar skorti alla langtímasýn á framtíðarþróun borgarinnar með öflugt hlutverk í atvinnulífs- og samfélagsþróun 21. aldar í huga. Þorkell kveðst vilja taka virkan þátt í breytingum sem flokkurinn þurfi að gera á rekstri og fjármálastjórn borgarinnar.