Mark Jordan Henderson og Fabinho fagna þriðja markinu í gær.
Mark Jordan Henderson og Fabinho fagna þriðja markinu í gær. — AFP
Liverpool og Chelsea söxuðu á forskot Manchester City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gær. City er nú níu stigum á undan Liverpool og tíu á undan Chelsea. Liverpool á leik til góða á City.

Chelsea vann verðskuldaðan 2:0-heimasigur á Tottenham og hefur Chelsea unnið alla fjóra leiki liðanna á leiktíðinni. Liverpool vann 3:1-sigur á Crystal Palace, en lokatölurnar gefa ekki rétta mynd af leiknum því Palace fékk töluvert fleiri færi. City missteig sig á laugardag og gerði 1:1-jafntefli við Southampton.