Öflug Bríet Sif Hinriksdóttir átti góðan leik fyrir Haukakonur.
Öflug Bríet Sif Hinriksdóttir átti góðan leik fyrir Haukakonur. — Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Haukar unnu afar öruggan 97:70-útisigur á Breiðabliki í Subway-deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 56:37 og var botnlið Breiðabliks ekki líklegt til að jafna í seinni hálfleik og Haukar sigldu þægilegum sigri í hús.
Haukar unnu afar öruggan 97:70-útisigur á Breiðabliki í Subway-deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 56:37 og var botnlið Breiðabliks ekki líklegt til að jafna í seinni hálfleik og Haukar sigldu þægilegum sigri í hús. Keira Robinson skoraði 27 stig og tók níu fráköst hjá Haukum og Bríet Sif Hinriksdóttir bætti við 17 stigum. Michaela Kelly og Isabella Ósk Sigurðardóttir skoruðu 20 hvor fyrir Breiðablik og Isabella tók 10 fráköst. Haukar eru í fjórða sæti með tíu stig.