Guðrún fæddist á Akureyri 20. júlí 1938. Hún lést 20. janúar 2022 í faðmi fjölskyldunnar, eftir stutt veikindi. Hún var einkadóttir hjónanna Ingileifar Ágústu Jóhannesdóttur og Hjalta Sigurðssonar húsgagnasmiðs. Hálfsystkini Guðrúnar, börn Hjalta, eru í aldursröð; Karl, Rósa, Reynir, Anna og Hjalti, sem er eftirlifandi.

Guðrún ólst upp í miðbænum, í Hafnarstræti 85. Hún gekk í Barnaskóla Akureyrar og síðan í Gagnfræðaskólann. Eftir gagnfræðapróf gekk hún í Húsmæðraskólann á Ísafirði.

Eftir skólagöngu var Guðrún ráðin til vinnu við bókband í Prentsmiðju Odds Björnssonar (POB), þar sem hún kynntist verðandi lífsförunaut sínum, Friðriki Vestmann, en hann var þar lærlingur í prentiðn. Þau trúlofuðu sig 17. júní 1958 og gengu í hjónaband 28. mars 1959.

Börn Guðrúnar og Friðriks eru: 1) Rúnar, f. 1959, giftur Hönnu Karlsdóttur og eiga þau þrjú börn; Katrínu, Evu Guðrúnu og Rúnar. 2) Ragnhildur, f. 1961, gift Gísla Kristinssyni og eiga þau þrjú börn; Friðrik, Aldísi Völu og Ásdísi Ósk. 3) Inga Margrét, f. 1964, gift Þórhalli Jónssyni og eiga þau einnig þrjú börn; Axel Darra, Andra Má og Rebekku Rut.

Guðrún og Friðrik eiga átta barnabörn og fjögur barnabarnabörn, þar af tvö fædd nú í janúar.

Árið 1965 stofnuðu þau hjónin Pedromyndir, fyrsta framköllunarfyrirtæki landsbyggðarinnar. Þar stóðu þau vaktina hlið við hlið alla tíð eða í alls 36 ár. Eftir að þau stigu til hliðar frá rekstrinum eyddu þau næstu átján vetrum í veðurblíðunni á Spáni en voru alkomin aftur til Íslands frá árinu 2019.

Útför Guðrúnar fer fram í Akureyrarkirkju í dag, 4. febrúar 2022, klukkan 10.

Athöfninni verður streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju; beinar útsendingar.

Hlekkur á streymi:

https://www.mbl.is/andlat

Það er svo sárt að kveðja þig elsku amma Dúna; söknuðurinn er svo mikill og skarðið er svo stórt. En minningarnar eru mér dýrmætar perlur...

Hvernig þú hafðir gælunöfn fyrir alla og viðurnefni yfir allt.

Hvernig þú snaraðir upp nýyrðum og varst svo endemis hnyttin og skjót í tilsvörum.

Ég leit alltaf upp til þín. Þú varst svo dugleg og drífandi, kvartaðir aldrei. Þú varst alltaf svo fín og flott, vel til höfð og elskaðir að punta þig.

Við unnum saman á hverjum degi hátt í 10 ár. Það að vinna með ykkur afa var mér mjög dýrmæt reynsla sem undirbjó mig fyrir lífið.

Þú kenndir mér að fara með peninga, að pakka inn í gjafapappír, að strauja skyrtur og að baka bestu súkkulaðibita sem til eru.

Ég reyndi að skreppa á hverju ári til Spánar til ykkar afa og á ég dásamlegar minningar þaðan, við vorum dugleg að þvælast um og leita að ævintýrum saman.

Við vorum svo miklir vinir, jafningjar. Það var aldrei leiðinlegt í kringum þig. Við höfðum alveg sama húmorinn og gátum alltaf hækkað í sömu Queen-lögunum. Þið afi sýnduð mér og manninum mínum svo mikla ást og hlýju þegar hann kom inn í fjölskylduna að hann kallar ykkur líka ömmu og afa.

Þegar við vorum hvort í sínu landinu þá skrifuðumst við á. Rithöndin þín var svo falleg, alltaf pottþétt, en svo tók tölvupósturinn við. Það var svo gaman að fá bréf frá þér með sögum um daginn og veginn, eins og afi segir alltaf „á Spáni er brjálað að gera, að gera ekki neitt“.

Ég fann hvað þú varst stolt af mér og þið afi hvöttuð mig svo áfram þegar ég fór í nám erlendis. Mér leiddist sko ekki að heyra sögurnar af ykkur afa þegar þið voruð ungt par í Danmörku og þið skilduð svo vel þessa útþrá sem ég hafði.

Ég er svo heppin að hafa haft þig í mínu lífi svona lengi og hvað við vorum nánar. Elsku amma takk fyrir allt, ég ber nafnið þitt með stolti.

Eva Guðrún Vestmann.